Skoðun

Keðju­sagar­stjórn­mál

Atli Bollason skrifar

Það var óneitanlega eftirminnilegt þegar Elon Musk sveiflaði keðjusög á íhaldsráðstefnunni CPAC snemma árs 2025. Keðjusögin var gjöf frá Javier Milei, forseta Argentínu, og báðir sveifluðu þeir þessu yfirgengilega verkfæri sem líkingu um hvernig þeir ætluðu sko að hakka báknið í spað og taka rækilega til í ríkisfjármálunum.

Þetta sjónarspil virðist hafa haft djúp áhrif á borgarstjórn sem sveiflar nú sinni eigin keðjusög í borgarkerfinu án þess að hafa sérstakar áhyggjur af því hvað verður fyrir henni. Aðalmálið er að „vera snöggur og brjóta dót“ (e. move fast and break things) - hvort sem „dótið“ er verðlaus hús sem listamenn hafa breytt í hugguleg vinnu- og viðburðarými á eigin kostnað, „borgarlínukonseptið eins og það lítur út núna“, samskiptainnviðir (á tímum netárása og tröllabúa), mannréttindaskrifstofa sem sinnti m.a. aðgengismálum og inngildingu, ráðgjafar sem vinna með viðkvæmum hópum eins og þolendum ofbeldis, jafnvel fjölskyldu- og húsdýragarðurinn og bókasöfnin.

Borgarfulltrúar meirihlutans láta nú ýmist eins og tillagan um bókasöfnin hafi verið óheppilega orðuð eða að lesskilningi borgarbúa sé ábótavant. Ætlunin sé þvert á móti að blása til stórsóknar fyrir bókasöfnin. Samt stendur ekki stafur í tillögunni um að bæta bókakost né aðstöðu, að lengja opnunartíma né fjölga viðburðum. Skrítið.

Sigur einkaframtaksins

Má ekki taka til í rekstri borgarinnar? Pottþétt. En reksturinn hefur samt gengið vel; allavega betur en hjá öllum hinum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu (nema Kópavogi) sama hvernig það er mælt: Reykvíkingar skulda minna per haus, skuldahlutfall er lægra og það er meira aukreitis til fjárfestingar eða niðurgreiðslu eftir að árið hefur verið gert upp. Þetta er þrátt fyrir það að Reykjavík hafi auknar skuldbindingar sem höfuðborg og sé auk þess eina sveitarfélagið sem sinnir félagslegri þjónustu af einhverju viti (næstum 80% félagslegs húsnæðis á Stór-Reykjavíkursvæðinu er í Reykjavík sjálfri). Þótt nýja borgarstjórnin segi allt í kalda kolum í rekstrinum er ekki þar með sagt að það sé satt. Það er hins vegar góð átylla til að sveifla keðjusögum.

Þörfin fyrir þjónustu sem er skorin niður fer hins vegar ekki neitt. Lausnunum er bara útvistað, sem þýðir að einhverjum þriðja aðila, sem hefur hagnað að leiðarljósi, er borgað fyrir að veita tiltekna þjónustu í stað starfsfólks borgarinnar. Fastur rekstrarkostnaður borgarinnar lækkar þá í bókhaldinu en liðurinn „aðkeypt þjónusta“ hækkar, stundum nóg til að þriðji aðilinn græðir á tá og fingri og getur keypt sér mörg fjórhjól.

Oft endar útvistunarævintýrið þó þegar þriðji aðilinn fattar að starfsemin er ekki mjög ábatasöm - enda gjarnan félagsleg í eðli sínu - og þá endar reksturinn aftur í fanginu á borginni með tilheyrandi kostnaði við að byrja upp á nýtt. Það er nú öll hagræðingin. En fyrir dogmatíska hægri menn er hún tákn um sigur einkaframtaksins.

Menningarstríð í Ráðhúsinu

Þetta síðasta skiptir máli því það verður æ skýrara að offors nýrrar borgarstjórnar er fyrst og fremst táknrænt. Það snýst ekki um rekstur (því þá væri keðjusögin á lofti í miklu fleiri sveitarfélögum) heldur næsta leik í menningarstríði „skynsamra hægri manna“ gegn „kommónistum“ og „libbum“. Hvergi sést þetta betur en í fáránlegri sýndarmennskunni við að „endurheimta“ fimmtán bílastæði (þótt alltaf sé nóg pláss í bílastæðahúsum miðborgarinnar). Það gæti vart verið andlausara og plebbalegra. En járnfrúin í Ráðhúsinu þekkir sitt fólk og maður heyrir vissulega veikan óm af fagnaðarlátum hjá þeim sem hafa látið ginna sig í þessa styrjöld.

Fórnarlömbin í þessu leikriti eru hins vegar starfsfólk borgarinnar og venjulegir Reykvíkingar sem er sama um alla leikjafræði og vilja bara búa í skemmtilegri menningarborg þar sem er þægileg samfella og fyrirsjáanleiki - ekki ótti við hvar urrandi keðjusögin ber næst niður.

Höfundur er Reykvíkingur.




Skoðun

Sjá meira


×