Ekki nóg fjármagn til að mæla þungmálma Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 14. febrúar 2019 13:15 Helga Gunnlaugsdóttir, sérfræðingur á Umhverfisstofnun.
Ólafur Reykdal og Helga Gunnlaugsdóttir hjá Matís segja skorta gögn og mælingar á óæskilegum efnum og næringarinnihaldi matvæla á Íslandi. Nýleg gögn séu ekki til. Stjórnvöld styðji ekki nægilega vel við slíkar rannsóknir. Matís rekur gagnagrunninn Ísgem. Hann er fyrst og fremst samansettur af upplýsingum um næringarefnin. Þungmálmarnir fljóta þó með. Markmiðið er að veita almenningi og atvinnulífi aðgang að bestu fáanlegu gögnum sem eru til á hverjum tíma. Vandamálið er að við höfum ekki haft fjármagn til að uppfæra gagnagrunninn í mörg ár, það er galli,“ segir Ólafur. Helga tekur undir. „Við ættum ekki að vera í þessari stöðu, það eru mörg ár síðan grunnurinn var síðast uppfærður,“ segir hún og segir að það þurfi að gera reglulegar rannsóknir á mataræði þjóðarinnar og fjármagna slíkar kannanir og rannsóknir. Síðasta landsrannsóknin á mataræði þjóðarinnar var gerð 2010. Ólafur segir samsvarandi gagnagrunna til í öllum nágrannalöndum Íslands. „Þeir eru í raun til í öllum þróuðum löndum og eru notaðir í lýðheilsurannsóknum,“ segir hann. „Við erum að gera okkar besta hjá Matís. En því miður er lítill skilningur á forvarnargildi þessara rannsókna hjá stjórnvöldum og lítið fjármagn sett í lýðheilsurannsóknir af þessu tagi,“ segir Helga. Á meðal þeirra þungmálma sem mældir hafa verið í fæðu eru kvikasilfur, arsen, kadmíum og blý. „Við erum ekki með nýleg gögn um magn þessara efna í fæðu. En almennt séð, ef fólk borðar fjölbreytta fæðu úr öllum fæðuflokkum þá er það betur statt,“ segir Helga sem segir óþarfa fyrir neytendur að fyllast hræðslu gagnvart fæðuflokkum sem innihalda lítið magn þungmálma. „Það eru þessi sértilfelli þar sem há gildi mælast, svo sem í hákarli og fiski sem nær háum aldri. Arsen getur verið áhyggjuefni hjá börnum ef maturinn sem þau borða er byggður að miklu leyti á hrísgrjónum og hrísgrjónamjólk,“ segir Helga.Hvers vegna er mikilvægt að fylgjast með innihaldi óæskilegra efna í fæðu? „Þessi gögn verða að vera til staðar og við þurfum að geta metið útsetningu mismunandi hópa fyrir efnunum. Það verða að vera til gögn frá óháðum aðilum um bæði næringarefni og óæskileg efni í matvælum. Það er oft verið að tala um að íslensk matvæli séu heilnæm og ómenguð en gögn sem styðja það eru af skornum skammti,“ segir Helga.Hvað finnst ykkur að neytandinn ætti að vera meðvitaður um? „Þetta er yfirgripsmikil spurning. Það má þó segja að neytendur verða að vera vakandi fyrir því að upplýsingar um óæskileg efni og magn næringarefna sé til staðar,“ segir Helga. „Fólk getur líka fengið of mikið af næringarefnum, til dæmis A-vítamíni, seleni og fleiri efnum. Á sama tíma eigum við ekki að vera of hrædd, það getur farið út í öfgar. Í Bandaríkjunum var talað mikið um að túnfiskur innihéldi kvikasilfur og væri ekki örugg fæða fyrir konur og börn. Það varð til þess að með tímanum fékk þessi hópur of lítið af fjölómettuðum fitusýrum. Fólk stendur oft frammi fyrir ákveðnu áhættu- og ávinningsmati varðandi val á matvælum. Það er best að fylgja leiðbeiningum yfirvalda um mataræði og velja vel merktar vörur,“ segir hún. Rannsókn leiddi í ljós hættu fyrir börn Árið 2012 leiddi sænsk rannsókn á þungmálmum (blýi, arseni og kadmíni) og steinefnum (járni, kopar, mangani) í barnamat. Niðurstöðurnar sýndu að arsen finnst í hrísgrjónum og vörum framleiddum úr þeim, til að mynda hrísgrjónagrautum og drykkjum markaðssettum fyrir börn. Arsenið fannst óháð því hvort hrísgrjónin voru lífrænt ræktuð eða ekki. Allar vörurnar sem stofnunin rannsakaði innihéldu arsen. Í hluta sýnanna fundust fleiri þungmálmar. Til að mynda í vörum fyrir börn með sérstakar næringarþarfir vegna sjúkdóma. Í þeim fannst of mikið af mangani. Sænska matvælastofnunin mælti eindregið með því að foreldrar gættu að fjölbreytni í fæðuvali fyrir börn sín yngri en sex ára. Það þyrfti að vernda börn yngri en sex ára fyrir skaðlegum áhrifum arsens og þungmálma. Árið 2013 lögðu Matvælastofnun og Embætti landlæknis til að sænsku ráðleggingarnar yrðu teknar upp á Íslandi og foreldrum í kjölfarið ráðlagt að gefa ekki börnum undir sex ára aldri hrísgrjónadrykki.
Birtist í Fréttablaðinu Heilbrigðismál Lyf Mest lesið Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Innlent Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Innlent Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Innlent Svona var blaðamannafundur nýs meirihluta í Reykjavík Innlent Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Innlent Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Innlent Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Innlent Svona skipta oddvitarnir stólunum Innlent Verkföll hafin í sex skólum Innlent Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Kennarar gengu út og nýr borgarstjórnarmeirihluti Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Svona skipta oddvitarnir stólunum Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Skilur vel reiðina sem blossi upp Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Svona var blaðamannafundur nýs meirihluta í Reykjavík Óljóst með skólahald eftir helgi Trans fólk veigri sér við ferðalögum til Bandaríkjanna Nýr meirihluti muni ekki vaða í stærri deilumál Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Jöklar jarðar rýrna mun hraðar en áður vegna aukinnar hlýnunar Niðurstöðu beðið í Karphúsinu Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Búrfellslundur verður Vaðölduver Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Zúistabræður telja sig ekki hafa fengið sanngjarna meðferð Verkföll hafin í sex skólum Kennaraverkföll skella á Skólameistari gengur út frá því að kennarar leggi niður störf Óvissa um verkföll eftir frestunarbeiðni Áfastir tappar dragi úr lífsvilja Sjá meira