Maðurinn sem leitað hefur verið að í og við Ölfusá frá því í gærkvöldi heitir Páll Mar Guðjónsson fæddur 28. júlí 1968 til heimilis að Stekkholti 11 á Selfossi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Í tilkynningu segir að aðstandendur Páls vilji þakka viðbragðsaðilum umfangsmikið og óeigingjarnt starf við leitina. Páll er ókvæntur og barnlaus.
Veður til leitar hefur farið batnandi í dag og verður leitað fram í myrkur í kvöld. Aftur verður hafist handa í fyrramálið ef leitin í dag ber ekki árangur.
Fjölmennt lið björgunarsveitarmanna hefur verið við leit við Ölfusá í dag. Í tilkynningu sem lögregla sendi frá sér fyrr í dag kom fram að um hundrað manns leiti á svæðinu nú síðdegis og fram eftir kvöldi.
Fréttin hefur verið uppfærð.

