Ummælin hafði Carlson uppi í umdeildum útvarpsþætti sem hann hringdi vikulega inn í á árunum 2006 til 2011. Samtökin Media Matters for America höfðu upp á hljóðupptökum úr þættinum og birtu í gær.
Þar heyrist Carlson meðal annars segja að hjónaband eldri karlmanna og stúlkna undir lögaldri sé ekki eins alvarlegt og nauðgun, að lög sem eiga að vernda friðhelgi einkalífs fórnarlamba kynferðisofbeldis séu ósanngjörn og að hann hefði mikinn áhuga á kynferðislegum athöfnum ungra stúlkna. Þá sagði hann konur almennt vera „mjög frumstæðar“. Notaði hann orð eins og „svín“ og „kunta“ um nafngreindar konur.
Washington Post segir að Carlson hafi í tvígang komið Warren Jeffs, fyrrverandi mormónaleiðtoga sem var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að nauðga börnum, til varnar í útvarpsþætti „Ástarsvampsins Bubba“ sem sendur er út frá Flórída.
„Þessi náungi er kannski barnanauðgari. Ég er bara að segja þér að það að koma á hjónabandi á milli sextán ára gamallar manneskju og 27 ára gamallar manneskju er ekki það sama og að rífa ókunnuga manneskju af götunni og nauðga henni,“ sagði Carlson í þættinum í september árið 2006.
In unearthed audio, Tucker Carlson makes numerous misogynistic and perverted comments https://t.co/g2xDnIk7N3 pic.twitter.com/TO3os8RjsM
— Media Matters (@mmfa) March 10, 2019
Ræddi um kynferðislegar tilraunir á heimavistarskóla dótturinnar
Þegar þáttastjórnendurnir mótmæltu og sögðu að það væri í reynd verra að skipuleggja hjónabönd með börnum því það væri þaulskipulagt gaf Carlson lítið fyrir rök þeirra.„Nauðgarinn, í þessu tilfelli, hefur tekið á sig skuldbindingu fyrir lífstíð að búa með og annast þessa manneskju þannig að það er svolítið öðruvísi,“ sagði sjónvarpsmaðurinn sem var ráðinn til Fox News árið 2009.
Í október það ár ræddu Carlson og útvarpsmaðurinn um kynferðislega tilraunastarfsemi ungra stúlkna í heimavistarskóla þar sem dóttir Carlson var við nám.
„Ef það væri ekki dóttir mín myndi ég elska þær aðstæður,“ sagði Carlson.
Um konur almennt lét Carlson ýmis gróf ummæli falla í útvarpsþættinum. Sagði hann þær frumstæðar og einfaldar. Þær vildu helst að karlmenn skipuðu þeim að „þegja og gera það sem þeim er sagt“.
Kallaði hann Aríönnu Huffington, stofnanda Huffington Post, „svín“ og Alexis Stewart, sjónvarpskonu og dóttur Mörthu Stewart „kuntulega“.
Breska ríkisútvarpið BBC segir að Carlson hafi einnig lýst söngkonunni Britney Spears og hótelerfingjanum París Hilton sem „mestu hvítu hórunum í Bandaríkjunum“.
— Tucker Carlson (@TuckerCarlson) March 11, 2019
Býður þeim sem eru ósammála í þáttinn
Þrátt fyrir að ummælin hafi vakið harða gagnrýni iðrast Carlson einskis. Í yfirlýsingu til Washington Post gerir hann lítið úr að samtökin hafi grafið upp áratugargamla upptöku af honum að segja „eitthvað dónalegt“.„Frekar en lýsa hefðbundinni iðrun, hvað með þetta í staðinn: ég er í sjónvarpinu í beinni í klukkustund á hverju virku kvöldi. Ef þú vilt vita hvað mér finnst getur þú horft. Hver sem er ósammála skoðunum mínum er velkominn að koma í þáttinn og útskýra hvers vegna,“ sagði í yfirlýsingunni.
Fox News vísaði til yfirlýsingar Carlson þegar stöðin var innt eftir viðbrögðum við upptökunum.
Nokkrir stórir auglýsendur gáfu þátt Carlson á Fox News upp á bátinn þegar ummæli hans um innflytjendur í Bandaríkjunum vöktu reiði. Sagði Carlson að innflytjendur gerðu Bandaríkin „fátækari og skítugari og klofnari“. Hann baðst ekki heldur afsökunar á þeim ummælum.