Heimildarmyndin Leaving Neverland var frumsýnd á HBO á dögunum og þar rekja Robson og Safechuck brot Jackson í miklum smáatriðum, líkt og fjallað var um á Vísi.
Robson segist hafa verið fimm ára þegar hann kynntist Jackson á danssýningu og sá síðarnefndi hafi svo byrjað að brjóta á honum tveimur árum síðar. Safechuck var átta ára þegar hann var ráðinn í hlutverk barns í Pepsi-auglýsingu sem Jackson fór með aðalhlutverkið í. Náin vinátta tókst á með þeim í kjölfarið og um mánuði síðar hóf Jackson að beita hann meintu kynferðisofbeldi.
Tekur sem dæmi að þeir hafi báðir gifst og eignast börn
Í helgarviðtali við breska blaðið The Times var Streisand, sem þekkti Jackson, spurð út í málið. Var hún meðal annars beðin um að lýsa Jackson.
„Kynferðislegar þarfir hans voru kynferðislegar þarfir hans, þær koma líklega frá barnæsku hans eða DNA-inu hans. Það er hægt að nota orðið „misnotkun“ en þessi börn, eins og við heyrðum þau segja, elskuðu að vera þarna. Þeir giftust báðir og eignuðust börn þannig að þetta drap þá ekki,“ sagði Streisand í viðtalinu.
Var hún einnig spurð að því hvort hún finndi fyrir reiði í garð Jackson.
„Þetta er samblanda af tilfinningum. Ég er leið fyrir hönd barnanna, ég er leið fyrir hönd hans. Ætli ég kenni ekki foreldrum þeirra sem leyfðu börnunum að sofa heima hjá honum. Af hverju ætli Michael hafi haft þörf fyrir að klæða börnin upp eins og hann, í skónum og dansandi með hatta?“ spurði Streisand.
Þrátt fyrir að sögusagnir og ásakanir um kynferðislegt ofbeldi Jackson í garð barna hafi áður komið fram hafa ítarlegar lýsingar Robson og Safechuk vakið óhug. Breska ríkisútvarpið BBC og norska ríkisútvarpið NRK hafa til ð mynda bæði ákveðið að hætta að spila tónlist Michael Jackson á útvarpsstöðvum þess, í það minnsta tímabundið.
Þá hefur þeirri spurningu verið varpað fram hvort siðferðislega réttlætanlegt sé að hlusta á tónlist Jackson, sem er fyrir löngu orðin goðsagnakennd.