Stríðsherrar og mismunandi fylkingar hafa barist um völd síðan.
Átök hafa geisað á svæðinu frá því á fimmtudaginn þegar uppreisnarliðar, sem kalla sig Líbýska Þjóðarherinn (LNA) undir stjórn hershöfðingjans Khalifa Haftar hófu áhlaup á höfuðborgina. Stjórnarherinn, sem nýtur stuðnings Sameinuðu Þjóðanna svaraði árásunum með loftárásum.
Að mestu hafa árásirnar komið frá suðri og vestri. Stjórnendur stjórnarhersins segjast ætla að gera gagnárás á uppreisnarmennina og AFP fréttaveitan segir aðra hópa hafa gengið til liðs svið stjórnarherinn. Meðal þeirra eru meðlimir Misrata, Brigade 166, sem tóku þátt í uppreisninni gegn Gaddafi.
Þeir ráku einnig vígamenn Íslamska ríkisins frá borginni Sirte, árið 2016.
Önnur ríki og alþjóðasamtök hafa staðið í því í dag að flytja starfsmenn og hermenn á brott frá Trípólí.
Greinendur sem AFP ræddu við segja Haftar vera í sterkri stöðu og að undanförnu hafi hann tryggt stjórn sína yfir suðurhluta landsins.