Sveinn til SönderjyskE Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. apríl 2019 08:54 Sveinn í leik með ÍR. vísir/bára
Línumaðurinn Sveinn Jóhannsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við danska úrvalsdeildarliðið SönderjyskE. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Sveinn, sem er 19 ára, er uppalinn hjá Fjölni en gekk í raðir ÍR fyrir þetta tímabil. Í vetur hefur hann skorað 37 mörk 17 leikjum með ÍR í Olís-deildinni. ÍR-ingar enduðu í 7. sæti og mæta Selfyssingum í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar. „Ég hlakka til að hefja æfingar með liðinu. Næstu þrjú ár verða góð áskorun fyrir mig og fyrir mér er SönderjyskE góður staður til að þroskast sem leikmaður. Ég veit líka að heimavöllur liðsins er góður og þar er jafnan mikil stemmning. Ég hlakka til að spila fyrir framan stuðningsmennina,“ sagði Sveinn í samtali við heimasíðu SönderjyskE. Sveinn hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands og var í 28 manna hópi A-landsliðsins fyrir HM í janúar. Hjá SönderjyskE hittir Sveinn fyrir landa sinn, Arnar Birki Hálfdánsson. SönderjyskE hefur leik í úrslitakeppninni um danska meistaratitilinn eftir landsleikjahléið.
Danski handboltinn Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Sjá meira