Jarðskjálfti af stærðinni átta skekur Perú Heimir Már Pétursson skrifar 26. maí 2019 09:23 Frá miðborg Lima, höfuðborg Perú. Vísir/Getty
Öflugur jarðskjálfti að öllum líkindum allt að átta að stærð reið yfir norðanverðan miðhluta Perú í morgun. Bandaríska jarðvísindastofnunin segir skjálftann hafa átt upptök sín á um 114 kílómetra dýpi, um 80 kílómetra suðaustur af þorpinu Lagunas og um 98 kílómetra frá borginni Yurimaguas klukkan 2:42 að staðartíma í nótt. Ekki hafa borist fréttir af manntjóni en eftir því sem upptök skjálfta eru nær yfirborði valda þeir meira tjóni. AP-fréttastofan segir að í höfuðborginni Lima hafi fólk hlaupið út úr húsum sínum af ótta við skjálftann. Rafmagni hefur slegið út í fjölda borga og þá hefur heyrst af því að gamlar byggingar hafi hrunið í Yurimanguas. Að sögn Veðurstofu Íslands rugluðu bylgjur jarðskjálftans mæla hér á landi. Þeir sýndu af þessum sökum skjálfta upp á 3,6 utan við Akureyri. Matrín Vizcarra, forseti Perú, biðlaði til landsmanna um að sýna stillingu. Yfirvöld væru að kanna ástandið á þeim svæðum þar sem áhrif skjálftans voru mest. Almannavarnir Perú áætla að skjálftinn hafi verið 7,2 að stærð.
Perú Mest lesið Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Margt bendi til þess að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Alvarlegt bílslys í Öræfum Innlent Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Erlent Grímuskylda á Landspítalanum Innlent Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Innlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Erlent Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Fleiri fréttir Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til þess að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Sjá meira