Lögreglumaður í Minnesota fangelsaður fyrir morð á vakt Andri Eysteinsson skrifar 7. júní 2019 21:32 Noor mætir til dóms, ásamt lögfræðiteymi sínu. Getty/Stephen Maturen
Lögreglumaðurinn fyrrverandi, Mohamed Noor, sem starfaði í Minneapolis í Minnesota var í dag dæmdur til tólf og hálfs árs fangelsisvistar fyrir að hafa orðið hinni fertugu Justine Damond að bana í júlí árið 2017. Damond, hafði sjálf hringt eftir aðstoð lögreglu, og var skotin þar sem hún hljóp að lögreglubílnum sem kom á vettvang. BBC greinir frá. Noor, sem var á vakt, bað fjölskyldu Damond afsökunar við dómsuppkvaðningu í dag en Noor viðurkenndi að hafa orðið Damond að bana í útkallinu í júlí 2017. Noor sagðist hafa heyrt háan hvell rétt áður en að Damond kom askvaðandi með hægri hönd útrétta. Því hafi hann tekið ákvörðun um að hleypa af skotvopni sínu sem varð Damond að bana. Noor kvaðst hafa óttast að setið væri um hann og félaga sinn á vettvangi. Saksóknarar höfðu við meðferð málsins gagnrýnt vinnubrögð Noor, sér í lagi fyrir að hafa skotið án þess að hafa séð vopn. Noor var sakfelldur í apríl síðastliðnum fyrir annars stigs manndráp og þriðja stigs morð fyrir verknaðinn. Úrskurðinum var mótmælt í dómshúsi í Minneapolis í dag en mótmælendur töldu að öðruvísi hefði farið með málið hefði hvítur lögregluþjónn verið lögsóttur í stað fyrir Noor sem var sómalskur innflytjandi. Justine Damond var 40 ára gömul þegar hún lést. Damond var upprunalega frá Sydney í Ástralíu og höfðu hún og unnusti hennar, Don Damond, áætlað að giftast í ágúst 2017, mánuði eftir að hún var myrt.
Bandaríkin Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira