Búinn að skora mark í fjórum efstu deildunum í Englandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2019 21:30 Billy Sharp fagnar markinu sínu. Getty/Michael Steele
Billy Sharp var ekki lengi að koma sér á blað í ensku úrvalsdeildinni um helgina og markið hans tryggði nýliðum Sheffield United stig á móti Bournemouth í fyrsta leik. Billy Sharp kom inn á sem varamaður á 82. mínútu og jafnaði metin í 1-1 aðeins sex mínútum síðar. Billy Sharp hefur þar með skorað mark í fjórum efstu deildunum á Englandi. Hann lék í D-deildinni með Rushden & Diamonds fyrir fimmtán árum en hefur lengstum spilað í B- og C-deildinni.Billy Sharp has now scored in each of England's top four divisions: League Two League One Championship Premier League A goal with his first ever shot in the top flight. pic.twitter.com/sUA9nhiMRs — Squawka Football (@Squawka) August 10, 2019Billy Sharp hafði spilað tvo leiki fyrir Southampton tímabilið 2012-13 eftir að hafa hjálpað liðinu upp um deild veturinn á undan. Tækifærin voru hins vegar fá og hann var lánaður til tveggja b-deildarliða tímabilið 2013-14. Eftir eitt tímabil með Leeds United (2014-15) þá var hann seldur til Sheffield United þar sem hann hefur spilað síðan. Þetta var í þriðja skiptið sem hann kom til félagsins eftir að hafa byrjað feril sin þar 2004-05 og einnig spilað þar frá 2007 til 2009. Sheffield United var í ensku C-deildinni þegar liðið keypti Billy Sharp aftur en síðan þá hefur Sharp skotið liðinu bókstaflega upp um tvær deildir á þremur árum. Hann skoraði 30 mörk í 46 leikjum þegar Sheffield United fór upp úr C-deildinni 2016-17 og var síðan með 23 mörk í 40 leikjum í ensku b-deildinni í fyrra. hann var valinn í lið ársins bæði tímabilin. Billy Sharp þurfti samt að sætta sig við það að vera á varamannabekknum í fyrsta úrvalsdeildarleik Sheffield United í rúm tólf ár. Hann var aftur á móti ekki lengi að stimpla sig inn þegar hann fékk loks tækifærið átta mínútum fyrir leikslok.
Enski boltinn Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Krefjast aðgerða vegna verðlaunahafa Hvít-Rússa Sport Mbappé úr leik næstu vikurnar Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Fleiri fréttir Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Sjá meira