Sex stiga frost mældist í nótt Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. september 2019 06:43 Það er tekið að hausta - og sums staðar að frysta. Vísir/vilhelm
Vindur hreyfðist lítið á landinu í nótt og við slíkar aðstæður myndast sums staðar froststillur. Þannig frysti víða síðustu nótt, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Til dæmis mældist eins stiga frost bæði í Víðidal og á Akureyri en mesta frost mældist þó á Grímsstöðum, sex stig. Í nótt frystir aftur og má búast við svipuðum tölum. Í dag verður hiti 4 til 12 stig að deginum, hlýjast suðvestanlands. Hæð er yfir Grænlandi og hryggur frá henni liggur yfir landið. Henni fylgja hægir vindar og víða bjart veður, en smáskúrir austantil á landinu síðdegis og jafnvel stöku él á Austurlandi í nótt.Veðurhorfur á landinuNorðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og bjart með köflum. Smáskúrir á austanverðu landinu eftir hádegi og líkur á éljum austanlands í nótt. Skúrir sunnantil síðdegis á morgun, annars þurrt. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast suðvestanlands, en víða næturfrost, einkum inn til landsins. Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ þriðjudag:Hæg breytileg átt og bjart með köflum, en stöku skúrir sunnantil á landinu, og smáskúrir eða él austanlands. Hiti 1 til 10 stig að deginum, hlýjast á suðvestanlands.Á miðvikudag:Suðaustan 8-13 m/s og dálítil væta, en hægari, þurrt og bjart norðan- og austantil. Hvessir talsvert á suðvestanverðu landinu um kvöldið. Hiti 4 til 9 stig.Á fimmtudag:Suðaustan 13-20 m/s og rigning, hvassast með suðurströndinni, en hægari og úrkomulítið norðanlands. Hiti 5 til 10 stig.Á föstudag:Hvöss suðaustanátt með rigningu í flestum landshlutum, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 6 til 11 stig.Á laugardag:Útlit fyrir suðlægri átt með rigningu víða um land. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast norðanlands.Á sunnudag:Líkur á sunnanátt með skúrum, en þurru veðri á norðanverðu landinu. Hiti 7 til 12 stig.
Veður Mest lesið Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Innlent Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Erlent Segir Heimildarmenn hafa njósnað um son hans Innlent „Dapurlegt að stjórnmálafólk loki augunum fyrir stöðunni“ Innlent Allt að tuttugu stiga hiti Veður Nýtt myndefni: Sparkað í blóðmerar á íslenskum sveitarbæ Innlent Myndaveisla: Grindvíkingar komu saman ári eftir rýmingu Innlent Óvenju margar bilanir í götulýsingu í Kópavogbæ Innlent Fleiri fréttir Fimm prósent segja innflytjendamálin mikilvægust Verðlaunuð fyrir að berjast gegn slúðri Tveir af fimm telja hvalveiðar veikja stöðu Íslands í alþjóðlegum viðskiptum Ósammála því að skoðanakannanir séu ekki nákvæmar Óvenju margar bilanir í götulýsingu í Kópavogbæ Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Segir Heimildarmenn hafa njósnað um son hans Myndaveisla: Grindvíkingar komu saman ári eftir rýmingu Björguðu villtum ferðamönnum í Fljótsdal „Dapurlegt að stjórnmálafólk loki augunum fyrir stöðunni“ „Erfiðir tímar iðulega undanfari betri tíma“ „Ég skildi ekki konuna eina eftir heima í þessum látum“ Þversagnakennt hve lítið sé talað loftslagsmál Sterkar systur á Selfossi keppa á heimsmeistaramóti Nýtt myndefni: Sparkað í blóðmerar á íslenskum sveitarbæ Sparkað í blóðmerar og eitt ár frá rýmingu Grindavíkur Í sjálfheldu á eigin svölum Nýtt líkan nýjung á Íslandi: VG og Sósíalistar nái ekki á þing og óvissa um Miðflokk Maðurinn er fundinn Stöðvun megi rekja til klúðurs og skorts á fjármagni Ótryggðir bændur Ár frá rýmingu í Grindavík: „Með mestu hamförum sem riðið hafa yfir Ísland“ Kom verðmætum fyrir í röngum bíl sem hvarf á brott Ár frá mestu hamförum síðari tíma og útboðshlé hjá Vegagerðinni Dó fjórum árum eftir að hún hvarf Stærsti skjálftinn við Öskju frá ársbyrjun 2022 Kyrrstaða í vegaframkvæmdum, sigur Trumps og kosningabaráttan framundan Allt of margir með hugann annars staðar í umferðinni Ætlar 1750 kílómetra á þrektækjum á einni viku í minningu vina Baráttan hafin á TikTok: Traktor í Skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma Sjá meira