Erlent

Sá Meghan lekann fyrir?

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex, höfðar nú mál gegn götublaðinu Mail on Sunday. Harry Bretaprins, eiginmaður hennar, stendur sjálfur í málaferlum gegn tveimur breskum fjölmiðlasamsteypum.
Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex, höfðar nú mál gegn götublaðinu Mail on Sunday. Harry Bretaprins, eiginmaður hennar, stendur sjálfur í málaferlum gegn tveimur breskum fjölmiðlasamsteypum. Vísir/getty

Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex, geymdi afrit af persónulegu bréfi sem hún sendi föður sínum, Thomas Markle, sem síðar var lekið í fjölmiðla. Þetta er talið benda til þess að Meghan hafi mögulega séð lekann fyrir.



Breska dagblaðið Guardian hefur þetta upp úr gögnum máls sem hertogaynjan höfðar nú gegn götublaðinu Mail on Sunday, sem birti bréfið. Hún sakar blaðið um brot á höfundarréttarlögum og brot gegn friðhelgi einkalífs hennar.



Lögmenn Meghan halda því m.a. fram að blaðið hafi aðeins birt valda hluta úr bréfinu og þannig tekið efni þess úr samhengi. Þannig hafi það ekki birt efnisgreinar þar sem hún gagnrýndi bresku götublöðin harðlega, auk athugasemda þar sem hún lýsti einlægum áhyggjum af heilsu og velferð föður síns.



Sjá einnig: Alvarlegar ásakanir Harrys á hendur götublöðunum



Þá hafi blaðið ekki leitað viðbragða hjá Meghan eða fulltrúa konungsfjölskyldunnar áður en bréfið var birt, og ekki látið hana vita af birtingu þess yfir höfuð.



Meghan skrifaði bréfið í ágúst 2018. Í því grátbiður hún föður sinn um að hætta að ræða einkamál hennar við blaðamenn og kvað hann hafa brotið hjarta sitt í „milljón bita“ með því að veita ítrekuð viðtöl um samband hennar við Harry Bretaprins, sem nú er eiginmaður hennar.



Faðir Markle tjáði sig um málið í forsíðuviðtali við Mail on Sunday í byrjun þessa mánaðar. Þar kvaðst hann hafa verið „miður sín“ þegar hann heyrði af því að tilvist bréfsins hefði kvisast út. Hann hefði því séð sig knúinn til að greina frá innihaldi þess eftir að ákveðin efnisatriði þess voru mistúlkuð.



Harry Bretaprins höfðar nú sjálfur mál gegn tveimur breskum fjölmiðlasamsteypum. Hann heldur því fram að bresk götublöð hafi leynt eða eytt sönnunargögnum um það hvernig þau komust yfir upplýsingar um hann, vini hans og ráðgjafa með ólöglegum aðferðum. Prinsinn telur brotin spanna mörg ár.


Tengdar fréttir

Alvarlegar ásakanir Harrys á hendur götublöðunum

Harry Bretaprins heldur því fram að bresk götublöð hafi leynt eða eytt sönnunargögnum um það hvernig þau komust yfir upplýsingar um hann, vini hans og ráðgjafa með ólöglegum aðferðum.

Bretaprins höfðar mál gegn the Sun

Hertoginn af Sussex, Harry Bretaprins, hefur fetað í fótspor eiginkonu sinnar, Meghan Markle, og hefur höfðað mál gegn eigendum fjölmiðlanna the Sun, the Daily Mirror og blaðinu News of the World, sem lagði upp laupana 2011, vegna meintra innbrota í síma prinsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×