„Þessir menn eiga ekki skilið að fá að horfa á fótbolta“ Anton Ingi Leifsson skrifar 17. október 2019 11:30 Hinn grjótharði Neil Warnock. vísir/getty
Neil Warnock, stjóri Cardiff í ensku B-deildinni, segir að búlgörsku stuðningsmennirnir sem höguðu sér illa á leik Búlgaríu og Englands á dögunum eiga ekki skilið að horfa á fótbolta. Mikið hefur verið rætt og ritað um rasismann sem átti sér stað í Búlgaríu er England kom í heimsókn á dögunum en stjórinn reynslumikli segir þó að Englendingarnir séu ekki bestir hvað þetta varðar. „Ekki gera nein mistök. Við erum ekki saklaus. Ég ferðast vítt um landið og við erum ekki saklaus og mér finnst við heldur ekki vera að gera nóg,“ sagði Warnock. „Ég held að við höfum tekið skref fram á við á síðustu tíu árum en það er enn langur vegur og við þurfum að vera með harðari refsingar.“"These guys don't deserve to be looking at football." Cardiff City manager Neil Warnock says Uefa should kick Bulgaria out of #Euro2020 qualification. In full: https://t.co/pn5u8DdtQipic.twitter.com/PEoxcz7itK — BBC Sport (@BBCSport) October 17, 2019 Forseti UEFA, Aleksander Ceferin, sagði eftir leikinn að samfélagið í heild sinni þyrfti að berjast gegn rasisma en Warnock segir að UEFA þurfi að setja tóninn. „Búlgararnir höfðu planað þetta. Þetta gerðist ekki bara allt í einu heldur var vandlega planað. Ég sá að forsetinn hafi beðið forseta sambandsins að segja af sér og það er ekki bara það, UEFA ætti að sparka þeim úr keppninni.“ „Það er ekki gott að sekta þá. Þessir menn eiga ekki skilið að fá að horfa á fótbolta og ef lögreglan í Búlgaríu getur ekki stýrt þeirra eigin stuðningsmönnum þá er það undir UEFA komið.“ „Þá er einungis eitt í stöðunni og það er að sparka þeim úr keppninni,“ bætti hinn grjótharði Warnock við að lokum.
Enski boltinn Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Sjá meira