Innlent

Þjófavarnarkerfi fældi þjóf

Samúel Karl Ólason skrifar
Í dagbók lögreglu kemur einnig fram að nokkrir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Einn hafði ítrekaði verið sviptur ökuréttindum.
Í dagbók lögreglu kemur einnig fram að nokkrir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Einn hafði ítrekaði verið sviptur ökuréttindum. Vísir/Vilhelm
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær tilkynning um innbrot á heimili á völlunum. Þar hafði þjófur spennt upp glugga og farið inn. Engu virðist þó hafa verið stolið og er talið að þjófavarnarkerfi hafi fælt innbrotsþjófinn. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.

Einnig var tilkynnt innbrot í fyrirtæki í Kópavogi en frekari upplýsingar um það liggja ekki fyrir.

Lögreglan handtók ölvaðan mann í miðbænum rúmlega sjö í gærkvöldi. Sá er grunaður um eignaspjöll. Hann var með járnstöng í hendi, var ógnandi og braut meðal annars rúðu.

Í dagbók lögreglu kemur einnig fram að nokkrir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Einn hafði ítrekaði verið sviptur ökuréttindum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×