Innlent

Karl og kona á áttræðisaldri grunuð um peninga­þvætti og smygl á fólki

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Karlinn og konan eru laus úr haldi en rannsókn lögreglu á málinu heldur áfram.
Karlinn og konan eru laus úr haldi en rannsókn lögreglu á málinu heldur áfram. vísir/vilhelm
Karl og kona, sem eru erlendir ríkisborgarar á áttræðisaldri, voru handtekin á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku og úrskurðuð í gæsluvarðhald í þágu rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á peningaþvætti og broti á lögum um útlendinga.

 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Þar segir að húsleit hafi farið fram að undangengnum dómsúrskurði á dvalarstað fólksins þar sem meðal annars var lagt hald á verulega fjármuni.

Þá er einnig grunur um að hin handteknu tengist smygli á fólki og að Ísland hafi verið viðkomustaður á þeirri leið.

Karlinn og konan eru laus úr haldi lögreglu en rannsókn málsins er í fullum gangi. Frekari upplýsingar verða ekki veittar að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×