Missti pabba sinn rétt fyrir mót en hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar Anton Ingi Leifsson skrifar 10. nóvember 2019 10:45 Emil Karel Einarsson. vísir/skjáskot
Emil Karel Einarsson hefur byrjað tímabilið frábærlega með Þór Þorlákshöfn. Hann skoraði 19 stig í sigri Þórsara á Fjölni á föstudagskvöldið. Hann er að meðaltali með rúmlega sautján stig í leik í fyrstu leikjum tímabilsins og sex fráköst en hann er næstum því með tuttugu framlagspunkta í leik það sem af er tímabilsins. Strákarnir í Dominos Körfuboltakvöldi ræddu byrjun Emil Karels í þætti sínum á föstudagskvöldið þar sem honum var lofað í hástert. „Hann er virkilega að svara kallinu. Hann var gagnrýndur mikið í fyrra,“ sagði Kristinn Friðriksson. Benedikt Guðmundsson tók í sama streng og rúmlega það: „Ég hef aldrei séð hann svona góðan. Ég þjálfaði hann í yngri flokkunum hjá Þór og aðeins í meistaraflokki þegar hann var nítján ára. Það sem gerist þetta svo frábært er að hann er stigahæsti Íslendingurinn í deildinni.“ „Hann var með 6,3 stig að meðaltali í fyrra. Sjáiði bætinguna! Hann er með 53% þriggja stiga nýtingu.“ Benedikt þekkir Emil Karel vel og segir að saga hans þetta tímabilið sé mögnuð og það liggi margar ástæður þar að baki. „Það sem gerir þetta svo dásamlegt er að hann missir pabba sinn rétt fyrir mót. Hann spilar ekki æfingarleikina fram að móti.“ „Hann kemur inn í þetta mót og það er enginn að segja mér annað að hann sé að halda merki föður síns á lofti. Hver getur ekki haldið með honum núna þennan veturinn? Þetta er að verða frábær saga.“ Innslagið má sjá í glugganum hér að neðan.Klippa: DK: Emil Karel er ein besta saga tímabilsins
Dominos-deild karla Körfuboltakvöld Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Íslenski boltinn Enski boltinn hefst í kvöld Fótbolti Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Fótbolti Fleiri fréttir „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Sjá meira