Janus Daði Smárason heldur áfram að fara á kostum í dönsku úrvalsdeildinni en hann lék á alls oddi gegn Bjerringbro-Silkeborg í kvöld.
Selfyssingurinn var markahæsti leikmaður vallarins er Álaborg vann sex marka sigur í Íslendingaslagnum, 32-26, eftir að hafa verið 14-13 undir í hálfleik.
Janus Daði skoraði tíu mörk úr tólf skotum í leiknum í dag og var markahæsti maður vallarins. Einnig gaf hann þrjár stoðsendingar en Álaborg er á toppnum með sex stiga forskot.
Þráinn Orri Jónsson komst ekki á blað í leiknum en Bjerringbro/Silkeborg er í 4. sæti deildarinnar.
Það er skammt stórra högga á milli hjá Álaborg þessa daganna en þeir töpuðu í Barcelona gegn heimamönnum í Meistaradeildinni á laugardaginn.
Þeir ferðuðust heim á sunnudeginum og spiluðu heima fyrir í kvöld. Næst bíður PSG á sunnudaginn.
