Breskur ráðherra sakaður um ítrekað einelti Kjartan Kjartansson skrifar 4. mars 2020 10:54 Priti Patel hafnar öllum ásökunum um einelti. Hún sagði af sér sem þróunarmálaráðherra árið 2017 þegar í ljós kom að hún fundaði á laun með ísraelskum valdamönnum þegar hún var þar í fríi. Vísir/EPA
Starfsmenn þriggja ráðuneyta hafa sakað Priti Patel, innanríkisráðherra Bretlands, um að hafa beitt sig einelti. Nýjar ásakanir hafa komið fram eftir að ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytisins sagði af sér um helgina vegna ósættis við ráðherrann. Ásakanirnar á hendur Patel eru frá þeim tíma sem hún stýrði þróunarmálaráðuneytinu frá 2016 til 2017 en einnig frá innanríkisráðuneytinu og atvinnumálaráðuneytinu. Breska ríkisútvarpið BBC segir að nýjar ásakanir hafi nú komið fram frá starfsmönnum skrifstofu hennar hjá þróunarmálaráðuneytinu árið 2017. Þar er Patel sögð hafa niðurlægt opinbera starfsmenn fyrir framan aðra, beitt starfsmenn miklum þrýstingi og látið undirmenn sína telja að henni fyndist þeir allir „vonlausir“. Ásakanirnar eru svipaðar þeim sem Philip Rutnam, ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytisins, setti fram á hendur Patel áður en hann sagði af sér á laugardag. Patel hafnar öllum ásökununum. Hún sagði af sér sem þróunarmálaráðherra vegna ferðar til Ísraels sem hún fór í án leyfis í nóvember árið 2017. Kona sem vann fyrir atvinnumálaráðuneytið er sögð hafa fengið um 25.000 pund, jafnvirði rúmra fjögurra milljóna íslenskra króna, þegar hún sakaði Patel um að hafa lagt sig í einelti þegar hún var ráðherra þar. Ráðuneytið viðurkenndi ekki bótaskyldu í málinu sem fór aldrei fyrir dómstóla. Ríkisstjórnin er sögð standa með Patel en rannsókn á ásökununum stendur þó yfir. Það gæti þó breyst ef mál sem Rutnam, fyrrverandi ráðuneytisstjóri, hefur höfðað gegn innanríkisráðuneytinu vegna ólögmætrar uppsagnar verður tekið fyrir hjá dómstólum. Rutnam fullyrðir að Patel hafi neitað að ræða við sig eftir að þau rifust um eineltisásakanir.
Bretland Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira