Fleiri deyja á dvalarheimilum en sjúkrahúsum á Bretlandi Samúel Karl Ólason skrifar 12. maí 2020 10:56 Mikill fjöldi eldri borgara á Bretlandi hefur dáið úr Covid-19. EPA/Leon Neal
Rúmlega 40 þúsund manns hafa nú dáið vegna Covid-19 á Bretlandi. Það er hæsta talan í Evrópu og eingöngu hafa fleiri dáið í Bandaríkjunum, eða minnst 80.684. Af þeim 40.011 sem hafa dáið á Bretlandi hafa nærri því tíu þúsund dáið á dvalarheimilum, samkvæmt umfjöllun Guardian, og hefur dauðsföllum þar fækkað hægar en dauðsföllum á sjúkrahúsum. Ljóst er þó að dauðsföllum hefur farið fækkandi um landið allt. Blaðamenn Reuter, sem hafa rýnt í tölfræðina á Bretlandi, segja að eldri borgarar Bretlands hafi setið eftir vegna áherslu ríkisstjórnar Boris Johnson, forsætisráðherra, á að verja sjúkrahús. Vitnað er í starfsmann Hagstofu Bretlands sem segist ekki muna til þess að það hafi gerst áður að dauðsföll hafi verið fleiri á dvalarheimilum en á sjúkrahúsum og það hafi verið svo að undanförnu. Miðað við tölur frá Johns Hopkins háskólanum hafa 30.739 dáið á Ítalíu, 26.744 á Spáni og 26.646 í Frakklandi. Það er þó ekki víst hvort þær tölur innihaldi dauðsföll á dvalarheimilum og heimilum vegna ósamræmis á milli opinberra talninga hvers ríkis fyrir sig.
Bretland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira