Evangelos Marinakis, eigandi enska B-deildarliðsins Nottingham Forest, hefur greinst með kórónuveiruna.
Gríski auðjöfurinn sagði frá þessu á Instagram í dag. Þar kvaðst hann vera við góða heilsu í sóttkví og færi eftir öllum fyrirmælum lækna.
From the official Instagram account of #nffc owner Evangelos Marinakis.
— BBC Nottingham Sport (@BBCRNS) March 10, 2020
He was at the Forest-Millwall game on Friday night.#coronavirus pic.twitter.com/rKf5w9jN04
Marinakis var á City Ground þegar Forest tapaði 0-3 fyrir Millwall á föstudaginn. Jón Daði Böðvarsson leikur með Millwall.
Sagt er að Marinakis hafi hitt leikmenn Forest á föstudaginn. Samkvæmt tilkynningu frá Forest sýndi hann engin einkenni veirunnar þá.
Club statement. #NFFC https://t.co/Xp2BSVC8rI
— Nottingham Forest FC (@NFFC) March 10, 2020
Marinakis er einnig eigandi Olympiacos. Gríska liðið mætir Wolves í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn. Leikurinn fer fram fyrir luktum dyrum.
Marinakis eignaðist meirihluta í Forest í maí 2017. Liðið er í 5. sæti ensku B-deildarinnar.
Nýjast: Öll nýjustu tíðindi má finna á undirsíðu Vísis um kórónuveiruna
Hvernig smitast kórónuveiran? Kórónuveiran sem veldur sjúkdómnum COVID-19 smitast aðallega með snertismiti og svokölluðu dropasmiti.
Spurt og svarað um kórónuveiruna: Hvað er hún? Hvar greindist hún? Hvað er vitað? Hvernig á að forðast smit?
Hver er munurinn á kórónuveirunni og hefðbundinni flensu? Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómalækninga á Landspítalanum, lýsti því á blðamannafundi á dögunum.
Réttindi ferðalanga vegna kórónuveirunnar: Réttur ferðamanna til að fá það tjón bætt sem þeir kunna að verða fyrir í tengslum við ferðalög vegna veirunnar er ólíkur eftir aðstæðum, til dæmis eftir því hvort fólk er að ferðast á eigin vegum eða er á bókað í pakkaferð. Heilbrigðir sem lenda í sóttkví erlendis eru ótryggðir.
Landsmenn eru minntir á mikilvægi handþvottar og sótthreinsunar. Ef einstaklingar finna fyrir veikindum er þeim bent á að hringja í síma 1700 (fyrir erlend símanúmer +354 544-4113) varðandi nánari upplýsingar og hvernig þeir eigi að nálgast heilbrigðiskerfið.