Handtekinn þegar hann reyndi að fara af vettvangi Vésteinn Örn Pétursson skrifar 2. júní 2020 06:20 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af þónokkrum ökumönnum sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum fíkniefna. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brást í á níunda tímanum í gærkvöldi við tilkynningu um umferðaróhapp þar sem tjónvaldur reyndi að komast gangandi frá vettvangi. Atvikið átti sér stað í Árbæ. Þegar lögregla kom á vettvang sást viðkomandi setjast inn í aðra bifreið, sem hafði stöðvað fyrir honum, og ætlaði hann sér að fara af vettvangi. Bifreiðin var stöðvuð og tjónvaldurinn handtekinn. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Handtekinn grunaður um fjölda brota Þá var maður handtekinn í Mosfellsbæ um svipað leyti. Sá var grunaður um nytjastuld bifreiðar, heimilisofbeldi, akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna, ítrekaðan akstur sviptur ökuréttindum, vörslu fíkniefna og fleira, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Maðurinn var vistaður í fangageymslu lögreglu fyrir rannsókn málsins. Akstur undir áhrifum og skjalafals Þá stöðvaði lögregla bifreið í Breiðholti laust fyrir miðnætti. Ökumaður hennar var handtekinn grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna, ítrekaðan akstur sviptur ökuréttindum og skjalafals, þar sem röng skráningarnúmer eru talin hafa verið á bifreið hans. Skráningarnúmer bifreiðarinnar voru í kjölfarið klippt af. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í nótt fjóra aðra ökumenn grunaða um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Lögreglumál Reykjavík Umferðaröryggi Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira