Þurfa að safna fimm til sex milljónum danskra króna til að bjarga liðinu frá gjaldþroti Anton Ingi Leifsson skrifar 2. júní 2020 18:00 Ágúst Elí á æfingu með íslenska landsliðinu. vísir/getty
Danska úrvalsdeildarfélagið KIF Kolding þarf að safna fimm til sex milljónum danskra króna ef liðið ætlar sér að spila í deild þeirra bestu á næstu leiktíð. Ágúst Elí Björgvinsson er samningsbundinn liðinu. KIF Kolding hefur verið mikið í fréttum í Danmörku að undanförnu en þeir hafa barist í bökkum fjárhagslega. Ólafur Gústafsson og Árni Bragi Eyjólfsson léku með liðinu á síðustu leiktíð en Ágúst Elí samdi við liðið á vormánuðum er allt virtist í fínu lagi. Stjórn deildarinnar ákvað hins vegar að hætta 12. maí þar sem ekki náðist að semja við leikmenn um skerðingu launa á tímum kórónuveirunnar. Þeir voru beðnir um að taka á sig 40% launalækkun en voru í mesta lagi tilbúnir að lækka laun sín um 20%. Félagið vonaðist eftir að þegar þessar fréttir bárust í fjölmiðla, að félagið væri að berjast við fjárhagserfiðleika, að þá myndu nokkrir fjársterkir aðilar leggja félaginu lið en það hefur ekki gerst. Nú þarf nýr formaður Gunnar Fogt og hans félagar í stjórninni að safna fimm til sex milljónum danskra króna, sem samsvarar 100 til 120 milljónum íslenskra króna. Ágúst Elí Björgvinsson skrifaði undir tveggja ára samning við félagið og framtíð hans er í óvissu eins og hjá öðrum leikmönnum liðsins.
Danski handboltinn Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Körfubolti Hrafnhildur til starfa hjá Sundsambandi Íslands Sport „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Fótbolti Fleiri fréttir „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Sjá meira