Guðmundur framlengir við HSÍ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. ágúst 2020 10:25 Heimsmeistaramótið í Egyptalandi verður tólfta stórmótið sem Guðmundur Guðmundsson stýrir íslenska landsliðinu á. vísir/andri marinó
Handknattleikssamband Íslands hefur framlengt samning Guðmundar Guðmundssonar, þjálfara karlalandsliðsins, um eitt ár. Þetta staðfesti Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, í samtali við Vísi í morgun. Guðmundur er nú samningsbundinn HSÍ til 2022. Samningurinn sem hann gerði við HSÍ 2018 átti að renna út 2021. Auk þess að þjálfa íslenska landsliðið er Guðmundur þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins Melsungen. Hann tók við Melsungen í febrúar á þessu ári en náði aðeins að stýra liðinu í nokkrum leikjum áður en keppni var hætt vegna kórónuveirufaraldursins. Guðmundur gerði síðan samning við Melsungen út næsta tímabil. Guðmundur tók í þriðja sinn við íslenska landsliðinu í febrúar 2018. Hann stýrði Íslandi á HM 2019 og EM 2020. Íslendingar enduðu í 11. sæti á báðum mótunum. Íslenska landsliðið er öruggt með sæti á HM í Egyptalandi á næsta ári. Dregið verður í riðla 5. september. Guðmundur stýrði íslenska landsliðinu áður á árunum 2001-04 og 2008-12. Undir hans stjórn vann Ísland til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum 2008 og bronsverðlauna á EM tveimur árum síðar. Alls hefur Guðmundur stýrt íslenska landsliðinu á ellefu stórmótum. Þá var hann aðstoðarþjálfari á einu stórmóti.
Handbolti Íslenski handboltinn HM 2021 í handbolta Mest lesið Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Uppgjör: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Íslenski boltinn Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Fótbolti Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Sjá meira