Staðfesta félagaskipti Jóns Arnórs til Vals: „Ótrúlega sérstakt að kveðja KR í bili“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. ágúst 2020 09:14 Jón Arnór hefur bara leikið með KR hér á landi. Nú verður breyting þar á. vísir/bára
Jón Arnór Stefánsson er genginn í raðir Vals frá KR. Þetta kemur fram á heimasíðu körfuknattleiksdeildar KR. Valur hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 11:00 þar sem Jón Arnór verður kynntur sem nýr leikmaður liðsins. Jón Arnór er uppalinn hjá KR sem er eina liðið sem hann hefur leikið með hér á landi. Hann hefur fimm sinnum orðið Íslandsmeistari með KR. „Það er ótrúlega sérstakt að kveðja KR í bili, enda alinn upp hérna, en mér fannst einfaldlega vera kominn tími á nýjar áskoranir. Ég fann að ef ég myndi halda áfram í körfubolta þá þyrfti ég að fara í nýtt umhverfi og ögra mér aðeins,“ segir Jón Arnór í fréttinni á heimasíðu KR. „Ég verð alltaf KR-ingur og það breytist ekkert, og það verður pottþétt skrýtið að spila í DHL-höllinni á næsta tímabili í annari treyju en KR treyjunni.“ Hjá Val hittir Jón Arnór fyrir sinn gamla þjálfara hjá KR, Finn Frey Stefánsson, sem og Pavel Ermolinskij sem hann lék lengi með hjá KR og íslenska landsliðinu. Jón Arnór, sem er 37 ára, sneri aftur heim 2016 eftir áralanga dvöl í atvinnumennsku erlendis. Hann lék sinn hundraðasta og síðasta leik fyrir íslenska landsliðið í febrúar í fyrra. Valur var í 10. sæti Domino's deildar karla þegar keppni var hætt vegna kórónuveirufaraldursins.
Dominos-deild karla Valur KR Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Willum vill fara norsku leiðina Sport „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Fleiri fréttir Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Sjá meira