Air Greenland fékk 14 milljarða króna afslátt frá Airbus við kaup á nýju breiðþotunni. Miðað við yfir 32 milljarða króna listaverð evrópska flugvélaframleiðandans þýðir þetta vel yfir fjörutíu prósenta afslátt.
Þetta er mat danska flugfréttamiðilsins check-in.dk. Matið er meðal annars byggt á orðum ráðamanna Air Greenland á blaðamannafundi síðastliðinn föstudag um að kaupverð þotunnar væri þriggja stafa tala í milljónum danskra króna, en þeir vildu að öðru leyti ekki gefa upp verðið. Grænlenska fréttasíðan Sermitsiaq fjallar einnig um málið.
Þriggja stafa tala í milljónum danskra króna þýðir að hámarki 999 milljónir danskra króna, eða kaupverð upp á 18,5 milljarða íslenskra króna að hámarki.
Sjá einnig hér: Grænlendingar kaupa nýja Airbus-breiðþotu
Fleira styður þetta mat um að Grænlendingar hafi fengið þotuna með miklum afslætti. Þotan hefur hlotið dræmar undirtektir flugfélaga og aðeins 14 eintök verið pöntuð. Þetta þýðir áhættu kaupanda um lágt endursöluverð. Hún er styttri en A330-900neo, en 323 eintök hafa selst af lengri gerðinni.

Þá er vitað að Air Greenland átti einnig í viðræðum við Boeing um kaup á Boeing 787-8 Dreamliner. Airbus-menn gætu hafa metið stöðuna svo að Boeing byði mikinn afslátt í öllum sínum vandræðagangi og væri ákaft í að ná Grænlandi aftur inn á heimskort bandaríska flugvélaframleiðandans, en Air Greenland rak Boeing 757-200 þotu áður en það keypti núverandi Airbus A330-200 þotu árið 2002.
Forstjóri Air Greenland, Jacob Nitter Sørensen, sagði á blaðamannafundinum fyrir helgi að kaupverðið hafi verið það sem réði úrslitum um að félagið valdi Airbus-þotuna fram yfir Boeing-þotuna. En fleira kom til. Með því að halda sig við Airbus A330 þarf Air Greenland ekki að endurþjálfa flugmenn né flugvirkja auk þess sem hluti varahluta nýtist áfram.
Danska flugfréttasíðan greinir einnig frá því að Air Greenland sé jafnframt með til skoðunar að kaupa minni Airbus A320-þotu til að geta sinnt fleiri áfangastöðum frá Grænlandi en Kaupmannahöfn.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2 frá því í haust frá fyrstu sprengingu að nýjum alþjóðaflugvelli í Nuuk: