Gunnar Steinn hélt upp á nýjan samning með stæl Sindri Sverrisson skrifar 13. febrúar 2020 20:41 Gunnar Steinn Jónsson skoraði átta mörk í kvöld. vísir/getty
Gunnar Steinn Jónsson og Rúnar Kárason áttu ríkan þátt í mikilvægum sigri Ribe-Esbjerg gegn liðinu í 3. sæti, Bjerringbro-Silkeborg, í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Ribe-Esbjerg vann leikinn 27-26 og var Gunnar Steinn markahæstur með átta mörk úr 11 skotum, auk þess sem hann gaf tvær stoðsendingar. Fjölnismaðurinn fyrrverandi skrifaði á dögunum undir nýjan samning við Ribe-Esbjerg sem gildir til sumarsins 2021. Rúnar lét einnig til sín taka í kvöld og skoraði fjögur mörk auk þess að gefa eina stoðsendingu. Daníel Þór Ingason var hins vegar ekki með í leiknum eftir að hafa snúið sig á æfingu í gær. Hann ætti þó að vera klár í slaginn gegn Kolding í næsta deildarleik. Eftir tvö töp gegn liðunum í næsta nágrenni við sig var sigurinn kærkominn fyrir Ribe-Esbjerg sem er nú með 23 stig líkt og Skjern í 5.-6. sæti, stigi á eftir GOG og tveimur stigum á eftir Bjerringbro-Silkeborg. Aalborg er langefst með 35 stig og Holstebro í 2. sæti með 27 stig, þegar sex umferðir eru eftir.
Danski handboltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira