Leiður og úrræðalaus Daníel segist hafa reynt að halda í Guðmund bæjarstjóra Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. mars 2020 09:00 Daníel Jakobsson og Guðmundur Gunnarsson sjá hlutina ansi ólíkum augum þegar kemur að samstarfi þeirra fyrir Ísafjarðarbæ.
Daníel Jakobsson, oddviti Sjálfstæðismanna á Ísafirði, segir frásögn Guðmundar Gunnarssonar í Mannlífi á föstudaginn valdi honum ekki aðeins vonbrigðum eða undrun. Hann viðurkennir að hann sé leiður og úrræðalaus eftir lesturinn. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Daníels á Facebook. Meirihlutinn hafi reynt að halda í Guðmund og lagt til lausnir. Guðmundur hafi hins vegar viljað hætta og lagt áherslu á trúnað um starfslokin. Sem Guðmundur hafi sjálfur kosið að rjúfa. Forsagan er sú að Guðmundur hrökklaðist úr starfi bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar í janúar. Hvorugur aðilinn tjáði sig um starfsflokin til að byrja með og vísuðu til ólíkrar sýnur á stefnu sveitarfélganna. Var borið við trúnaði en hann varði ekki lengi. „Svo kem ég bara heim og tek af þér djobbið“ Guðmundur líkti meirihluta í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, sem samanstendur af tveimur Framsóknarmönnum og þremur Sjálfstæðismönnum - með Daníel sem oddvita sinn, við plöntuna í Litlu hryllingsbúðinni. Hún væri aldrei ánægð og fengi aldrei nóg. „Ég sá þá að það var ekki verið að leita að stjórnanda, það var verið að leita að strengjabrúðu,“ sagði Guðmundur í viðtalinu. Þá lýsti hann því að símtal frá Daníel, sem staddur var í Noregi, í desember síðastliðnum sitji mest í honum þegar hann horfi yfir bæjarstjóratíð sína. Guðmundur er uppalinn Bolvíkingur og flutti með fjölskylduna úr höfuðborginni til Ísafjarðar. Hann hefur lýst brottförinni sem flótta þar sem fjölskyldan sé ekki lengur velkomin á Ísafirði.Vísir/Sammi „Hann endaði símtalið á því að segja svona í framhjáhlaupi: „Svo kem ég bara heim og tek af þér djobbið.“ Ég man að mér fannst þetta furðulegt og taktlaust og skrýtið. Hver segir svona í gríni eða alvöru? Það fyrsta sem ég gerði var að hringja í konuna mína og spyrja hana hvort ég brygðist of hart við. Hverju ertu mögulega að koma áleiðis? En eftir á að að hyggja skil ég samhengið.“ Segja Guðmund ekki hafa skilið hlutverk bæjarstjóra Meirihlutinn í Ísafjarðarbæ brást við viðtalinu á föstudag og sagði að Guðmundur hefði sjálfur ákveðið að hætta. Það hafi hann gert þegar „þörfin var hvað mest fyrir samstöðu“ hjá sveitarfélaginu. „Þrátt fyrir margvíslegar sögusagnir, ekki síst frá Guðmundi sjálfum, er því rétt að leiðrétta nokkrar yfirlýsingar. Það er rangt sem haldið er fram að starfslokin tengist snjóflóðunum á Flateyri og Súgandafirði og það er rangt að bæjarstjóri hafi átt að vera strengjabrúða bæjarstjórnar,“ sagði í yfirlýsingu meirihlutans. Þá taldi meirihlutinn að Guðmundur hefði ekki gert sér ljóst hvert stjórnsýslulegt eðli starf bæjarstjóra sé og að það hafi ekki uppfyllt væntingar hans miðað við frásagnir hans eftir starfslok. „Meirihluti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar hefur verið samstíga í störfum sínum frá upphafi kjörtímabilsins. Það á einnig við um þá ákvörðun að ráða ópólitískan bæjarstjóra. Öllum ummælum um annað er vísað til föðurhúsanna.“ Reyndu að finna lausnir til að halda Guðmundi Daníel, sem sagðist í samtali við Vísi á dögunum örugglega vera frekur karl, deilir yfirlýsingu meirihlutans með færslu sinni. „Ég geymi galla. Ég get verið hryssingslegur í samskiptum, ég er óþolinmóður og stundum er djúpt á mýktina í mér. Vafalaust hafa þessir gallar verið meinsemd í samskiptum okkar Guðmundar sem hann tók inn á sig. Mér finnst það virkilega leiðinlegt,“ segir Daníel. „En í mér býr líka hrá og óspillt réttlætiskennd, ég leitast við að reynast fólki vel, kem heiðarlega fram og held í heiðri trúnað og heilindi.“ Hann sé undrandi, leiður og úrræðalaus eftir að hafa lesið orð Guðmundar. Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.Vísir/vilhelm „Það að gera manni það upp að það sé bara ekkert mál að segja einstaklingi upp, sem fjárfest hefur í samfélaginu, til að svala eigin metnaði er eins langt frá því sem ég stend fyrir og ég hugsað mér. Þeir sem skipta mig máli, vita að svo er.“ Starfslok Guðmundar hafi ekkert með snjóflóðin á Flateyri og Súgandafirði að gera eða framgöngu hans í þeim málum. „Það var skelfileg staða fyrir okkur bæjarfulltrúa og ekki síst íbúa Ísafjarðarbæjar, að missa bæjarstjórann rétt eftir snjóflóðin. Guðmundur óskaði sjálfur eftir að láta af störfum og vildi ekki starfa áfram. Honum leið ekki vel í starfi. Meirihlutinn fundaði með Guðmundi og lagði til lausnir svo Guðmundur fengist til að halda áfram. Allt kom fyrir ekki.“ Guðmundur lagt áherslu á trúnað Við starfslokin hafi Guðmundur sjálfur óskað eftir trúnaði um orsakir starfsloka hans. „Meirihlutinn í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti það og hefur því lítið tjáð sig um málið. Hins vegar hefur Guðmundur ákveðið sjálfur að aflétta trúnaðinum án samráðs við þann sem Guðmundur óskaði sjálfur eftir að virti trúnað um málið, hans og fjölskyldu hans vegna. Kannski það sé mest lýsandi fyrir vandamálið í samskiptum meirhlutans við Guðmund Gunnarsson.“ Málið hafi fengið á hann persónulega. Það sé bæði vond tilfinning að vera beittur órétti og skærum. Það muni þó vafalaust jafna sig. „Leiðastur er ég gagnvart samfélaginu sem ég virði, elska og dái. Ísafjarðarbær og íbúar hans eiga allt annað skilið en þá umfjöllun sem dunið hefur á bæjarfélaginu. Hér býr gott og heiðarlegt fólk, ekki alltaf sammála en geymir allt sömu þrána í hjartanu; framgang, framsókn og glæsta framtíð Ísafjarðarbæjar. Guðmundi og fjölskyldu óska ég velfarnaðar, gæfu og hamingju.“ Hann ætli ekki að tjá sig frekar um málið.
Ísafjarðarbær Sveitarstjórnarmál Tengdar fréttir Meirihlutinn segir Guðmund hafa ákveðið að hætta Meirihlutinn í Ísafjarðarbæ segir að Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóra Ísafjarðar, hafi sjálfur ákveðið að hætta. Það hafi hann gert þegar „þörfin var hvað mest fyrir samstöðu“ hjá sveitarfélaginu 28. febrúar 2020 18:07 Segist ekki hafa mátt taka ákvarðanir án leyfis og lýsir „skrýtnu“ símtali frá Noregi Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, lýsir meirihlutanum í bæjarstjórn sem "plöntunni í Litlu hryllingsbúðinni“; aldrei ánægð og fær aldrei nóg. 28. febrúar 2020 08:25 Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Fleiri fréttir Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Sjá meira
Meirihlutinn segir Guðmund hafa ákveðið að hætta Meirihlutinn í Ísafjarðarbæ segir að Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóra Ísafjarðar, hafi sjálfur ákveðið að hætta. Það hafi hann gert þegar „þörfin var hvað mest fyrir samstöðu“ hjá sveitarfélaginu 28. febrúar 2020 18:07
Segist ekki hafa mátt taka ákvarðanir án leyfis og lýsir „skrýtnu“ símtali frá Noregi Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, lýsir meirihlutanum í bæjarstjórn sem "plöntunni í Litlu hryllingsbúðinni“; aldrei ánægð og fær aldrei nóg. 28. febrúar 2020 08:25
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent