Aðeins einn unnið fleiri leiki í úrslitakeppni en LeBron Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. ágúst 2020 12:50 LeBron fær einstaka sinnum hjálp frá samherjum sínum. Ashley Landis/Getty Images
Það voru mikil vonbrigði fyrir LeBron James að komast ekki í úrslitakeppni NBA-deildarinnar á síðustu leiktíð. Hann var fenginn til Los Angeles Lakers til lyfta liðinu upp í hæstu hæðir. Lengi vel stefndi í að LeBron og ungur kjarni Lakers-liðsins sem hafði ekkert getað í nokkuð ár myndi ná sæti í úrslitakeppninni. LeBron þurfti hins vegar að setja í „úrslitakeppnisgírinn“ fyrr en hann ætlaði. Svo fór það svo að LeBron meiddist, Lakers komst ekki í úrslutakeppnina og endaði á því að losa sig við ungu leikmennina fyrir stórstjörnuna Anthony Davis. Eitthvað sem liðið sér ekki eftir í dag en í fyrsta skipti í áratug náði liðið 1. sæti í Vesturdeildinni. Hins vegar hafði liðið ekki verið sannfærandi síðan NBA-kúlan hófst og LeBron ekki alveg verið samkvæmur sjálfum sér. Það kom samt sem áður á óvart þegar liðið tapaði óvænt fyrir Portland í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppninnar. Time to work! Playoffs mode activated #StriveForGreatness— LeBron James (@KingJames) April 18, 2014 Venjulega hefur LeBron notað síðustu leiki tímabilsins til að gíra sig upp í úrslitakeppnina. Eðlilega spila leikmenn deildarinnar ekki alla leiki á fullu gasi alltaf enda 82 leikir í hefðbundinni deildarkeppni og svo úrslitakeppni ofan á það. Ekki nóg með það þá hefur hann venjulega lokað öllum samfélagsmiðlum – þar sem hann er frekar virkur allan ársins hring – og ekki gefið neitt af sér nema þau viðtöl sem hann þarf að fara í á vegum deildarinnar. LeBron – sem er á sínu 17. ári í deildinni – virtist þó ekki alveg vera í þeim gír í síðustu leikjum Lakers fyrir úrslitakeppnina og missti af einum leik vegna meiðsla. Þá hefur hann ekki enn lokað samfélagsmiðlum einfaldlega vegna þeirra atburða sem hafa átt sér stað í Bandaríkjunum undanfarna mánuði. LeBron vill fá fólk á kjörstað í mögulegum forsetakosningum og nýta rödd sína til góðs. Því virðist hann hafa tekið þá ákvörðun að halda samfélagsmiðlum opnum sem og að gefa viðtöl sem hann er ekki vanur. LeBron átti persónulega góðan leik er Lakers tapaði fyrir Portland. Hann var með þrefalda tvennu, 23 stig, 17 fráköst og 16 stoðsendingar. Þegar Lakers valtaði síðan yfir Portland í öðrum leik liðanna var LeBron aðeins með tíu stig og gaf boltann oftar frá sér en hann skoraði utan af velli. Í nótt náði hann hins vegar að tengja saman persónulega góðan leik sem og sigur. Undarleg myndlíking hans eftir leik lýsti leik hans þó ágætlega. HIGHLIGHTS | @KingJames goes off for 38 points, 12 boards and 8 dimes to take the series lead. pic.twitter.com/cYp82P6Tx9— Los Angeles Lakers (@Lakers) August 23, 2020 „Stundum fór ég hratt, hægt eða miðlungs. Þetta var eins og að keyra beinskiptan bíl, stundum var ég í fyrsta gír og stundum var ég í sjötta gír. Ég get lesið leikinn og brugðist við því gerðist, skipti engu máli hvort ég væri á hraðbrautinni eða í íbúðahverfi. Að geta verið á mismunandi hraða eftir því hversu mikil umferð er lykillinn að árangri,“ sagði James í mjög svo áhugaverðu viðtali eftir leik. James endaði með 38 stig, 12 fráköst og átta stoðsendingar. Frank Vogel, þjálfari liðsins, hróstaði honum í hástert eftir leik. Frank Vogel on @KingJames: I loved it. He was living in the paint, living at the rim. He was drawing contact, getting to the FT line. When help comes, he s still making the right passes, but Vogel loved the level of aggression.— Mike Trudell (@LakersReporter) August 23, 2020 Sigurinn þýðir að LeBron er kominn í 2. sæti yfir flesta sigra sögunnar í úrslitakeppni NBA-deildarinnar. Hann tók fram úr Tim Duncan í nótt og stefnir á 1. sætið en þar situr Derek Fisher. * @KingJames moves up to No. 2 on the all-time playoff wins list with his 158th W, trailing only @derekfisher (161). LeBron passed Tim Duncan, now in 3rd with 157 wins.— Mike Trudell (@LakersReporter) August 23, 2020 Þó sigur LeBron með Cleveland Cavaliers árið 2017 – þegar liðið kom til baka gegn Golden State Warriors eftir að vera 3-1 undir – mun eflaust alltaf vera hans helsta afrek á körfuboltavellinum. Að því sögðu er ljóst að LeBron getur náð ákveðnum hápunkti, innan- sem og utan vallar á komandi vikum.
Körfubolti NBA Tengdar fréttir Lakers vann naumlega | Thunder hélt einvíginu á lífi | Myndbönd Los Angeles Lakers, Milwaukee Bucks, Miami Heat og Oklahoma City Thunder unnu öll í úrslitekeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. 23. ágúst 2020 09:30 Mest lesið Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Fótbolti Frækinn sigur Englendinga á Azteca Fótbolti Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Fótbolti Banabiti Brassa var þegar Ancelotti setti Neymar inn á Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Bjarki Már til franska stórveldisins Handbolti Fleiri fréttir Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Sjá meira
Lakers vann naumlega | Thunder hélt einvíginu á lífi | Myndbönd Los Angeles Lakers, Milwaukee Bucks, Miami Heat og Oklahoma City Thunder unnu öll í úrslitekeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. 23. ágúst 2020 09:30