Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir fyrir um gengi liðanna í Olís-deild karla en keppni í deildinni hefst með þremur leikjum á morgun, fimmtudaginn 10. september.
Í fyrradag skoðuðum við þrjú neðstu liðin í spá okkar, í gær litum við á liðin sem berjast um síðasta lausa sætið í úrslitakeppninni og núna er komið að liðunum sem freista þess að ná heimavallarrétti í úrslitakeppninni.
Að okkar mati munu bikarmeistarar ÍBV, Afturelding, Selfoss og Stjarnan berjast um sæti 4-7 í Olís-deildinni í vetur. Þau hafa samt væntanlega flest vonir og væntingar um að blanda sér í toppbaráttuna.
Liðin hafa tekið mismiklum breytingum frá síðasta tímabili en eru nokkuð svipuð að getu. Það var því þrautinni þyngra að raða þeim í sæti.

Stjarnan í 7. sæti: Sveiflar Patti töfrasprotanum í heimabænum?
Fullt af nýjum leikmönnum eru komnir í Stjörnuna en stærstu fréttirnar eru þær að Patrekur Jóhannesson er kominn aftur til uppeldisfélagsins eftir áratugar fjarveru. Síðustu tvö liðin sem Patrekur hefur stýrt á hér á landi, Haukar og Selfoss, hafa orðið Íslandsmeistarar undir hans stjórn.
Stjarnan er ekki á þeim stað eins og staðan er núna og raunar frekar langt frá því. Eftir að hafa flakkað milli deilda í nokkur ár hafa Stjörnumenn fest sig í sessi í Olís-deildinni. Þeir hafa þó þurft að gera sér miðjumoð að góðu undanfarin ár þrátt fyrir að hafa oft haft á sterku liði að skipa. Stjarnan komst þó í bikarúrslit á síðasta tímabili þar sem liðið laut í lægra haldi fyrir ÍBV.
Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Stjörnunnar frá því á síðasta tímabili. Liðið fékk tvo af bestu ungu leikmönnum deildarinnar, Hafþór Vignisson og Dag Gautason, efnilega stráka frá Fjölni, tvo nýja markverði og Björgvin Hólmgeirsson endurnýjaði kynnin við Stjörnuna. Sterkir leikmenn hafa yfirgefið Garðabæinn en liðið virðist samt vera öflugra en á síðasta tímabili.
Patrekur ætlar að koma Stjörnunni í hæstu hæðir og hefur gefið sér þrjú ár til þess. Þolinmæði gæti reynst dyggð á þeirri vegferð. TM-höllin hefur verið eins og draugahús undanfarin ár og áhugi Garðbæinga á liðinu hefur nánast ekki verið neinn. Það gæti breyst með Patreki sem á að koma hleypa nýju lífi í starfið hjá Stjörnunni og láta hana skína.
Hversu langt síðan að Stjarnan ...
- ... varð Íslandsmeistari: Aldrei
- ... varð deildarmeistari: Aldrei
- ... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 21 ár (1999)
- ... varð bikarmeistari: 13 ár (2007)
- ... komst í bikarúrslit: 0 ár (2020)
- ... komst í úrslitakeppni: 1 ár (2019)
- ... komst í undanúrslit: Aldrei
- ... komst í lokaúrslit: Aldrei
- ... féll úr deildinni: 5 ár (2015)
- ... kom upp í deildina: 4 ár (2016)
Gengi Stjörnunnar í deildarkeppninni undanfarin níu tímabil
- 2019-20 8. sæti í deildinni
- 2018-19 8. sæti í deildinni
- 2017-18 7. sæti í deildinni
- 2016-17 9. sæti í deildinni
- 2015-16 B-deild (1. sæti)
- 2014-15 9. sæti í deildinni
- 2013-14 B-deild (2. sæti)
- 2012-13 B-deild (2. sæti)
- 2011-12 B-deild (3. sæti)
Gengi Stjörnunnar í úrslitakeppninni undanfarin níu tímabil
- 2019-20 Úrslitakeppnin fór ekki fram
- 2018-19 Átta liða úrslit
- 2017-18 Átta liða úrslit
- 2016-17 Ekki í úrslitakeppni
- 2015-16 B-deild
- 2014-15 Ekki í úrslitakeppni
- 2013-14 B-deild
- 2012-13 B-deild
- 2011-12 B-deild
Stjarnan handbolti og Sixt skrifa undir samning Sjarnan og Sixt hafa framlengt samstarfi sínu og verður Sixt einn af...
Posted by Stjarnan Handbolti on Föstudagur, 3. júlí 2020
HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili
Sóknarleikur Stjörnunnar 2019/20 í tölum HBStatz
- Mörk skoruð í leik - 8. sæti (26,6)
- Skotnýting - 8. sæti (58,0%)
- Vítanýting - 3. sæti (84,1%)
- Hraðaupphlaupsmörk - 6. sæti (59)
- Stoðsendingar í leik - 12. sæti (8,3)
- Tapaðir boltar í leik - 5. sæti (8,8)
Vörn og markvarsla Stjörnunnar 2019/20 í tölum HBStatz
- Mörk fengin á sig í leik - 7. sæti (27,1)
- Hlutfallsmarkvarsla - 8. sæti (29,6%)
- Varin víti - 11. sæti (8)
- Stolnir boltar - 8. sæti (76)
- Varin skot í vörn - 4. sæti (47)
- Lögleg stopp í leik - 6. sæti (19,9)
Félagaskiptamarkaðurinn

Komnir:
- Arnar Máni Rúnarsson frá Fjölni
- Björgvin Hólmgeirsson frá Stjörnunni
- Goði Ingvar Sveinsson frá Fjölni
- Brynjar Hólm Grétarsson frá Þór
- Sigurður Dan Óskarsson frá FH
- Pétur Árni Hauksson frá HK
- Adam Thorstensen frá ÍR
- Gunnar Hrafn Pálsson frá Gróttu
- Dagur Gautason frá KA
- Hafþór Vignisson frá ÍR
Farnir:
- Ragnar Snær Njálsson til KA
- Andri Már Rúnarsson til Fram
- Hannes Grimm til Gróttu
- Birgir Steinn Jónsson til Gróttu
- Gunnar Valdimar Johnsen til ÍR
- Bjarki Már Gunnarsson hættur
- Ari Magnús Þorgeirsson
- Ólafur Rafn Gíslason til ÍR
- Eyþór Vestmann til ÍR
- Sveinbjörn Pétursson til Aue
- Árni Þór Sigtryggsson hættur
- Andri Þór Helgason til Gróttu
Líklegt byrjunarlið
- Mark: Brynjar Darri Baldursson
- Vinstra horn: Dagur Gautason
- Vinstri skytta: Tandri Már Konráðsson
- Miðja: Ólafur Bjarki Ragnarsson
- Hægri skytta: Hafþór Vignisson
- Hægra horn: Leó Snær Pétursson
- Lína: Arnar Máni Rúnarsson

Verður að eiga gott tímabil
Eftir nokkurra ára dvöl í atvinnumennsku kom Tandri Már Konráðsson aftur heim í fyrra og gekk í raðir Stjörnunnar. Hann var markahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili og besti varnarmaður þess. Tandri er ein besta langskytta deildarinnar og þarf að eiga gott tímabil ef Stjarnan á að taka skref fram á við.
Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...
Theodór Ingi Pálmason fer yfir möguleika Stjörnunnar í Olís-deild karla í vetur.

Selfoss í 6. sæti: Lífið eftir Hauk
Hvar finnurðu 278 mörk sem eru farin úr liðinu þínu? Það verður stærsta verkefni Halldórs Sigfússonar, nýs þjálfara Selfoss. Haukur Þrastarson er farinn í atvinnumennsku og kemur vonandi ekki aftur í íslensku deildina næstu fimmtán árin eða svo.
Haukur var marka- og stoðsendingahæsti leikmaður Olís-deildarinnar á síðasta tímabili og skoraði og lagði upp 278 af 618 mörkum Selfyssinga. Íslandsmeistararnir skoruðu flest mörk allra í deildinni en ekkert lið fékk á sig fleiri mörk.
Halldór byrjar líklega á þeim enda, að reyna að laga varnarleikinn. Þá þarf litháíski landsliðsmarkvörðurinn Vilius Rasimas að vera góður en Selfoss var með verstu markvörsluna í Olís-deildinni í fyrra. Betri vörn og markvarsla myndi létta pressunni af sókninni svo Selfoss þyrfti ekki alltaf að skora rúmlega 30 mörk til að vinna leiki.
Velunnarar Selfoss hjálpuðu liðinu að landa Guðmundi Hólmari Helgasyni sem hefur leikið sem atvinnumaður undanfarin ár. Það voru metnaðarfull félagaskipti og Guðmundur ætti sér í lagi að styrkja vörn liðsins.
Selfyssingar voru í 5. sæti Olís-deildarinnar þegar síðasta tímabil var flautað af og gátu nokkuð vel við unað miðað við áföllin sem dundu á liðinu. Jákvæða hliðin á þeim peningi voru að enn fleiri ungir og efnilegir leikmenn fengu tækifæri og lögðu inn á reynslubankann fyrir framtíðina. Einn þeirra er Ísak Gústafsson sem þarf að leysa stöðu hægri skyttu í vetur.
Halldór er fær þjálfari og hefur náð góðum árangri þar sem hann hefur starfað. Hann er með gott lið og góðan efnivið í höndunum á Selfossi og það verður spennandi að sjá hvernig lífið eftir Hauk verður í Mjólkurbænum.
Hversu langt síðan að Selfoss ...
- ... varð Íslandsmeistari: 1 ár (2019)
- ... varð deildarmeistari: Aldrei
- ... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 1 ár (2019)
- ... varð bikarmeistari: Aldrei
- ... komst í bikarúrslit: 27 ár (1993)
- ... komst í úrslitakeppni: 1 ár (2019)
- ... komst í undanúrslit: 1 ár (2019)
- ... komst í lokaúrslit: 1 ár (2019)
- ... féll úr deildinni: 9 ár (2011)
- ... kom upp í deildina: 4 ár (2016)
Gengi Selfoss í deildarkeppninni undanfarin níu tímabil
- 2019-20 5. sæti í deildinni
- 2018-19 2. sæti í deildinni
- 2017-18 2. sæti í deildinni
- 2016-17 5. sæti í deildinni
- 2015-16 B-deild (3. sæti)
- 2014-15 B-deild (4. sæti)
- 2013-14 B-deild (3. sæti)
- 2012-13 B-deild (5. sæti)
- 2011-12 B-deild (4. sæti)
Gengi Selfoss í úrslitakeppninni undanfarin níu tímabil
- 2019-20 Úrslitakeppnin fór ekki fram
- 2018-19 Íslandsmeistari
- 2017-18 Undanúrslit
- 2016-17 Átta liða úrslit
- 2015-16 B-deild
- 2014-15 B-deild
- 2013-14 B-deild
- 2012-13 B-deild
- 2011-12 B-deild
HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili
Sóknarleikur Selfoss 2019/20 í tölum HBStatz
- Mörk skoruð í leik - 1. sæti (30,9)
- Skotnýting - 1. sæti (64,0%)
- Vítanýting - 5. sæti (81,5%)
- Hraðaupphlaupsmörk - 8. sæti (55)
- Stoðsendingar í leik - 1. sæti (13,4)
- Tapaðir boltar í leik - 6. sæti (9,3)
Vörn og markvarsla Selfoss 2019/20 í tölum HBStatz
- Mörk fengin á sig í leik - 12. sæti (30,5)
- Hlutfallsmarkvarsla - 12. sæti (26,9%)
- Varin víti - 1. sæti (19)
- Stolnir boltar - 6. sæti (79)
- Varin skot í vörn - 7. sæti (46)
- Lögleg stopp í leik - 5. sæti (20,3)
Félagaskiptamarkaðurinn
Komnir:
- Vilius Rasimas frá Aue (Þýskalandi)
- Guðmundur Hólmar Helgason frá WestWien (Austurríki)
Farnir:
- Haukur Þrastarson til Kielce (Póllandi)
- Einar Baldvin Baldvinsson til Vals (úr láni)
- Hreiðar Levý Guðmundsson til Vals
- Guðni Ingvarsson hættur
Líklegt byrjunarlið
- Markvörður: Vilius Rasimas
- Vinstra horn: Hergeir Grímsson
- Vinstri skytta: Einar Sverrisson
- Miðja: Guðmundur Hólmar Helgason
- Hægri skytta: Ísak Gústafsson
- Hægra horn: Alexander Már Egan
- Lína: Atli Ævar Ingólfsson

Verður að eiga gott tímabil
Guðmundur Hólmar Helgason er mættur aftur í Olís-deildina eftir fjögurra ára fjarveru. Honum er ætlað að koma í stað Hauks í liði Íslandsmeistaranna. Hann fyllir ekki skarð hans í sókninni, enda gerir það enginn, en Akureyringurinn ætti að styrkja vörn Selfoss sem var hriplek á síðasta tímabili.
Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...
Rúnar Sigtryggsson fer yfir möguleika Selfoss í Olís-deild karla í vetur.

Afturelding í 5. sæti: Ný rödd hljómar í Mosfellsbænum
Í fyrsta sinn í sex ár er Einar Andri Einarsson ekki þjálfari Aftureldingar. Hann lét af störfum í Mosfellsbænum í vor og við tók Gunnar Magnússon. Þrátt fyrir að vera ekki nema rétt rúmlega fertugur er Gunnar gríðarlega reyndur þjálfari sem hefur bæði gert ÍBV og Hauka að Íslandsmeisturum.
Eftir erfið ár í kjölfar blómaskeiðs Aftureldingar í kringum aldamótin er liðið aftur búið að festa sig í sessi sem eitt af þeim bestu á Íslandi. Á tíma Einars Andra með Aftureldingu komst liðið tvisvar í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn og einu sinni í bikarúrslit. Forráðamenn Aftureldingar gera ekki minni kröfur á Gunnar en Einar Andra og stefnan er væntanlega að berjast á toppnum.
Mosfellingar voru í 3. sæti Olís-deildarinnar þegar síðasta tímabil var blásið af. Afturelding spilaði sterka vörn sem skilaði þó ekki nógu mörgum mörkum úr hraðaupphlaupum. Ekkert lið skoraði færri slík í Olís-deildinni en Afturelding. Mosfellingar þurfa að halda uppteknum hætti í vörninni í vetur og vonast til að hún skili fleiri ódýrum mörkum.
Afturelding fékk góða sendingu úr Breiðholtinu í formi Bergvins Gíslasonar, Sveins Andra Sveinssonar og Þrándar Gíslasonar Roth en þeir styrkja liðið mikið. Þá fékk Afturelding þrjá leikmenn frá liðunum sem féllu úr Olís-deildinni á síðasta tímabili, þ.á.m. hinn unga og efnilega Blæ Hinriksson frá HK.
Mosfellingar misstu Tuma Stein Rúnarsson til Valsmanna en Sveini Andra er ætlað að fylla skarð hans. Þeir eru ólíkir leikmenn og Sveinn Andri ætti að koma með annan brag á sóknarleik Aftureldingar.
Hversu langt síðan að Afturelding ...
- ... varð Íslandsmeistari: 21 ár (1999)
- ... varð deildarmeistari: 20 ár (2000)
- ... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 0 ár (2020)
- ... varð bikarmeistari: 21 ár (1999)
- ... komst í bikarúrslit: 3 ár (2017)
- ... komst í úrslitakeppni: 1 ár (2019)
- ... komst í undanúrslit: 3 ár (2017)
- ... komst í lokaúrslit: 4 ár (2016)
- ... féll úr deildinni: 7 ár (2013)
- ... kom upp í deildina: 6 ár (2014)
Gengi Aftureldingar í deildarkeppninni undanfarin níu tímabil
- 2019-20 3. sæti í deildinni
- 2018-19 6. sæti í deildinni
- 2017-18 6. sæti í deildinni
- 2016-17 4. sæti í deildinni
- 2015-16 3. sæti í deildinni
- 2014-15 2. sæti í deildinni
- 2013-14 B-deild (1. sæti)
- 2012-13 8. sæti í deildinni
- 2011-12 7. sæti í deildinni
Gengi Aftureldingar í úrslitakeppninni undanfarin níu tímabil
- 2019-20 Úrslitakeppnin fór ekki fram
- 2018-19 Átta liða úrslit
- 2017-18 Átta liða úrslit
- 2016-17 Undanúrslit
- 2015-16 Lokaúrslit
- 2014-15 Lokaúrslit
- 2013-14 B-deild
- 2012-13 Ekki í úrslitakeppni
- 2011-12 Ekki í úrslitakeppni
Handknattleiksdeild Aftureldingar hefur komist að samkomulagi við Gunnar Magnússon sem mun taka við þjálfun...
Posted by Handknattleiksdeild Aftureldingar on Þriðjudagur, 17. desember 2019
HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili
Sóknarleikur Aftureldingar 2019/20 í tölum HBStatz
- Mörk skoruð í leik - 7. sæti (27,3)
- Skotnýting - 4. sæti (61,2%)
- Vítanýting - 7. sæti (75,6%)
- Hraðaupphlaupsmörk - 12. sæti (45)
- Stoðsendingar í leik - 6. sæti (11,5)
- Tapaðir boltar í leik - 3. sæti (8,6)
Vörn og markvarsla Aftureldingar 2019/20 í tölum HBStatz
- Mörk fengin á sig í leik - 4. sæti (26,5)
- Hlutfallsmarkvarsla - 6. sæti (31,7%)
- Varin víti - 2. sæti (15)
- Stolnir boltar - 10. sæti (73)
- Varin skot í vörn - 4. sæti (47)
- Lögleg stopp í leik - 7. sæti (19,0)
Félagaskiptamarkaðurinn
Komnir:
- Blær Hinriksson frá HK
- Hafsteinn Berg Óli Ramos Rocha frá Fjölni
- Sveinn Andri Sveinsson frá ÍR
- Bergvin Þór Gíslason frá ÍR
- Bjarki Snær Jónsson frá Fjölni
- Þrándur Gíslason Roth frá ÍR
- Úlfar Páll Monsi Þórðarson frá Val
Farnir:
- Böðvar Páll Ásgeirsson í nám erlendis
- Gestur Ólafur Ingvarsson
- Júlíus Þórir Stefánsson hættur
- Tumi Steinn Rúnarsson til Vals
- Eyþór Örn Ólafsson til FH
- Karolis Stropus til Þórs
- Björgvin Franz Björgvinsson til Fjölnis (lán)
Líklegt byrjunarlið
- Markvörður: Arnór Freyr Stefánsson
- Vinstra horn: Gunnar Malmquist Þórsson
- Vinstri skytta: Þorsteinn Gauti Hjálmarsson
- Miðja: Sveinn Andri Sveinsson
- Hægri skytta: Birkir Benediktsson
- Hægra horn: Guðmundur Árni Ólafsson
- Lína: Einar Ingi Hrafnsson

Verður að eiga gott tímabil
Birkir Benediktsson byrjaði síðasta tímabil frábærlega og klúðraði varla skoti. Hann gaf aðeins eftir seinni hluta tímabilsins en gat samt gengið mjög sáttur frá borði. Birkir var nálægt því að fara í atvinnumennsku en nú er ljóst að hann verður áfram hjá Aftureldingu. Hann er gríðarlega öflug skytta sem nær ómögulegt er að stöðva þegar hann kemst á ferðina.
Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...
Rúnar Sigtryggsson fer yfir möguleika Aftureldingar í Olís-deild karla í vetur.

ÍBV í 4. sæti: Vonast til að létta lundina í Eyjum
Eyjamenn voru í 7. sæti Olís-deildarinnar þegar síðasta tímabil var flautað af en héldu hundrað prósent árangri sínum í Höllinni þegar þeir unnu Stjörnumenn í bikarúrslitaleiknum.
Þrjár kempur, sem komu mismikið við sögu í fyrra, lögðu skóna á hilluna eftir tímabilið. Þá fóru Kristján Örn Kristjánsson og Elliði Snær Viðarsson í atvinnumennsku. Þeir voru máttarstólpar í liði ÍBV, bæði í vörn og sókn, og Eyjamenn munu sakna þeirra sárt. Þá er Theodór Sigurbjörnsson meiddur.
Eyjamenn minntu á sig með því að vinna Valsmenn í Meistarakeppninni á sunnudaginn og verða ekki óskamótherjar neins liðs í úrslitakeppninni. Vörn ÍBV er sterk, þótt Elliði skilji eftir sig stórt skarð, og ekkert lið skoraði fleiri mörk úr hraðaupphlaupum í Olís-deildinni á síðasta tímabili.
Hornin og línan eru vel skipuð en stærsta spurningarmerkið er staða hægri skyttu. Þar verður Ásgeir Snær Vignisson einfaldlega að standa sig. Sigtryggur Rúnarsson er svo spennandi viðbót en hann þreytir frumraun sína í efstu deild á Íslandi í vetur.
Þjálfari ÍBV er heimamaðurinn Erlingur Richardsson er á sínu þriðja tímabili eftir að tók við liðinu í þriðja sinn 2018. ÍBV hefur verið í og við toppinn undanfarin ár og það breytist ekkert í vetur. Eftir erfitt ár þurfa Eyjamenn nauðsynlega á einhverju jákvæðu að halda og vonast til að handboltaliðin þeirra bjóði upp á Þjóðhátíð inni á vellinum.
Hversu langt síðan að ÍBV ... .
- .. varð Íslandsmeistari: 2 ár (2018)
- ... varð deildarmeistari: 2 ár (2018)
- ... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 2 ár (2018)
- ... varð bikarmeistari: 0 ár (2020)
- ... komst í bikarúrslit: 0 ár (2020)
- ... komst ekki í úrslitakeppni: 7 ár (2013)
- ... komst í undanúrslit: 1 ár (2019)
- ... komst í lokaúrslit: 2 ár (2018)
- ... féll úr deildinni: 12 ár (2008)
- ... kom upp í deildina: 7 ár (2013)
Gengi ÍBV í deildarkeppninni undanfarin níu tímabil
- 2019-20 7. sæti í deildinni
- 2018-19 4. sæti í deildinni
- 2017-18 Deildarmeistari
- 2016-17 2. sæti í deildinni
- 2015-16 4. sæti í deildinni
- 2014-15 7. sæti í deildinni
- 2013-14 2. sæti í deildinni
- 2012-13 B-deild (1. sæti)
- 2011-12 B-deild (5. sæti)
Gengi ÍBV í úrslitakeppninni undanfarin níu tímabil
- 2019-20 Úrslitakeppnin fór ekki fram
- 2018-19 Undanúrslit
- 2017-18 Íslandsmeistari
- 2016-17 Átta liða úrslit
- 2015-16 Undanúrslit
- 2014-15 Átta liða úrslit
- 2013-14 Íslandsmeistari
- 2012-13 B-deild
- 2011-12 B-deild
HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili
Sóknarleikur ÍBV 2019/20 í tölum HBStatz
- Mörk skoruð í leik - 4. sæti (29,3)
- Skotnýting - 2. sæti (62,6%)
- Vítanýting - 2. sæti (84,3%)
- Hraðaupphlaupsmörk - 1. sæti (95)
- Stoðsendingar í leik - 4. sæti (12,0)
- Tapaðir boltar í leik - 7. sæti (10,1)
Vörn og markvarsla ÍBV 2019/20 í tölum HBStatz
- Mörk fengin á sig í leik - 6. sæti (27,0)
- Hlutfallsmarkvarsla - 7. sæti (30,2%)
- Varin víti - 8. sæti (11)
- Stolnir boltar - 9. sæti (75)
- Varin skot í vörn - 10. sæti (37)
- Lögleg stopp í leik - 8. sæti (18,9)
Félagaskiptamarkaðurinn
Komnir:
- Sigtryggur Daði Rúnarsson frá Lübeck-Schwartau (Þýskalandi)
- Ásgeir Snær Vignisson frá Val
- Jonathan Werdelin frá TMS Ringsted (Danmörku)
- Svanur Páll Vilhjálmsson frá Fram
Farnir:
- Sigurbergur Sveinsson hættur
- Kristján Örn Kristjánsson til Pays d'Aix (Frakklandi)
- Elliði Snær Viðarsson til Gummersbach (Þýskalandi)
- Magnús Stefánsson hættur
- Grétar Þór Eyþórsson hættur
Líklegt byrjunarlið
- Markvörður: Petar Jokanovic
- Vinstra horn: Hákon Daði Styrmisson
- Vinstri skytta: Sigtryggur Daði Rúnarsson
- Miðja: Fannar Þór Friðgeirsson
- Hægri skytta: Ásgeir Snær Vignisson
- Hægra horn: Gabríel Martinez
- Lína: Kári Kristján Kristjánsson

Verður eiga að gott tímabil
Petar Jokanovic var misjafn á sínu fyrsta tímabili með ÍBV og 28,9 prósent hlutfallsmarkvarsla er ekki merkileg tölfræði. En þegar hann var góður var hann virkilega góður, og aldrei betri en í bikarúrslitaleiknum gegn Stjörnunni. Jokanovic verður að eiga fleiri góða leiki í vetur og ef það tekst verða Eyjamenn í góðum málum.
Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...
Theodór Ingi Pálmason fer yfir möguleika ÍBV í Olís-deild karla í vetur.