Ásta Júlía komin aftur heim í Val Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. september 2020 10:50 Ásta Júlía Grímsdóttir í bikarúrslitaleiknum á móti Stjörnunni árið 2019. Vísir/Daníel Þór
Valskonur eru búnar að fá flottan liðstyrk fyrir komandi tímabil í Domino´s deild kvenna í körfubolta því Ásta Júlía Grímsdóttir mun spila með liðinu í vetur. Körfuknattleikskonan Ásta Júlía Grímsdóttir gerði í dag tveggja ára samning við körfuknattleiksdeild Vals. Ásta Júlía hefur undanfarið ár leikið með Houston Baptist University í Texas en var þar áður tvö tímabil í Val og varð meðal annars bikar- og Íslandsmeistari með liðinu tímabilið 2018-2019. Ásta Júlía hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands og var á dögunum valin í æfingahóp A-landsliðsins. Hún er enn bara nítján ára gömul og hefur því svo sannarlega framtíðina fyrir sér. Þessi vetur átti að vera hennar annar vetur í háskólaboltanum í Texas en vegna breyttra aðstæðna tók Ásta þá ákvörðun um að snúa aftur í Val. Ásta Júlía var Valsliðinu mikilvæg á þrennutímabilinu 2018-19 enda mikill orkubolti á báðum endum vallarins og öflug undir körfunni. Ásta Júlía var með 7,8 stig og 6,5 fráköst að meðaltali á 21,1 mínútu í leik á því tímabili. Ásta Júlía Grímsdóttir gerði í dag tveggja ára samning við körfuknattleiksdeild Vals. Ásta Júlía hefur undanfarið ár...Posted by Valur Körfubolti on Miðvikudagur, 23. september 2020
Dominos-deild kvenna Valur Mest lesið Lyfti tvö hundruð kílóum tíu sinnum í röð Sport Jón Daði hættur í fótbolta: „Á endanum stend ég eftir með ekkert nema þakklæti“ Fótbolti Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Íslenski boltinn Bjarni varð eftir í Svíþjóð og er á förum frá Val Fótbolti Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Enski boltinn Þingkonan hlaut EM-brons eftir mikla spennu Sport „Allur heimurinn gæti hlegið að mér“ Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Enski boltinn Sveindís missti af prinsessuleiknum Fótbolti Sjóðheit Ída Marín kveður FH Íslenski boltinn Fleiri fréttir Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Sjá meira