Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Kristjáni Valentin Ólafsyni, 22 ára. Kristján er 178 sentímetrar á hæð, frekar þéttvaxinn með dökkt stutt hár. Hann var klæddur í rauðar Adidas-íþróttabuxur og appelsínugula hettupeysu þegar síðast sást til hans fyrir tveimur dögum síðan.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um dvalarstað Kristjáns eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000. Leitin að Kristjáni er á forræði lögreglustöðvarinnar á Dalvegi í Kópavogi.