Fótbolti

Glódís skoraði í stórsigri Rosengård í Meistaradeildinni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir var á skotskónum í Meistaradeild Evrópu í dag.
Glódís Perla Viggósdóttir var á skotskónum í Meistaradeild Evrópu í dag. vísir/bára

Glódís Perla Viggósdóttir skoraði eitt marka Rosengård í stórsigri á Lanchkhuti frá Georgíu, 0-7, í fyrri leik liðanna í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Rosengård gekk hreint til verks í leiknum í Tíblisi í dag og var komið í 0-6 eftir rúman hálftíma. Sænska liðið bætti svo einu marki við í seinni hálfleik.

Glódís var á sínum stað í vörn Rosengård og lék allan leikinn. Hún kom liðinu í 0-6 á 33. mínútu eftir stoðsendingu frá Johönnu Rytting Kaneryd.

Auk Glódísar voru Jelena Cankovic, Rytting Kaneryd, Anna Anvegård, Sanne Troelsgaard, Hanna Bennison og Caroline Seger á skotskónum í dag.

Seinni leikur Rosengård og Lanchkhuti fer fram í Malmö eftir viku. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×