Wilbek íhugar að bjóða sig fram til varaformennsku Atli Ísleifsson skrifar 5. janúar 2021 11:35 Ulrik Wilbek stýrði danska karlalandsliðinu í handbolta á árunum 2006 til 2014. Getty Ulrik Wilbek, borgarstjóri Viborg í Danmörku og fyrrverandi þjálfari danska karlalandsliðsins í handbolta, segist nú íhuga að bjóða sig fram til varaformennsku í Venstre.
Þetta segir hann í samtali við Viborg Stifts Folkeblad. „Ég hef fengið mikla hvatningu og þetta er eitthvað sem ég vil skoða,“ segir Wilbek. Embætti varaformanns í Venstre er nú laust eftir að formaður flokksins, Jacob Ellemann-Jensen, bað Inger Støjberg, fyrrverandi ráðherra innflytjendamála, að hætta. Sagði Elleman-Jensen að Støjberg hafi ítrekað gengið og talað gegn línu formannsins. Þau gætu ekki unnið saman lengur. Ulrik Wilbek setur þó þrjú skilyrði fyrir því að hann myndi taka varaformennskuna að sér: Að hann muni áfram starfa sem borgarstjóri Viborg, að varaformaður yrði ekki eins áberandi og hann var í varaformennskutíð Støjberg og svo að það verði ekki kosningabarátta um nýjan varaformann, það er að hann yrði sjálfkjörinn. „En ef við ætlum að hafa stjórn á flokknum, þá verður auðvitað einhver að bjóða sig fram,“ segir Wilbek. Wilbek stýrði lengi danska landsliðinu, en árið 2014 tók Guðmundur Guðmundsson við liðinu. Guðmundur stýrði danska liðinu til Ólympíugulls á leikunum í Rio de Janeiro árið 2016, en mikið var þá fjallað um að Wilbek reynt að grafa undan Guðmundi á leikunum.
Danmörk Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Sjá meira