Fjöldi yfirmanna hjá Danske Bank sleppur við ákæru Atli Ísleifsson skrifar 7. janúar 2021 14:29 Rannsókn leiddi í ljós að um 200 milljarðar evra hafi um árabil verið þvættaðir í útibúi Danske Bank í Eistlandi. Peningurinn kom frá ólöglegri starfsemi í Rússlandi. Getty Fjöldi yfirmanna hjá Danske Banka getur nú andað léttar eftir að tilkynnt var að þeir hafi sloppið undan ákæru í tengslum við rannsókn á peningaþvættishneykslinu í Eistlandi. DR segir frá því að mál sex fyrrverandi stjórnarmanna bankans hafi verið felld niður.
Haft er eftir saksóknaranum Per Fiig að rannsóknin hafi ekki leitt í ljós að stjórnarmennirnir hafi ekki gerst sekir um brot á lögum um peningaþvætti. Rannsóknin hafi ekki leitt í ljós að þeir hafi gerst sekir um svo stórkostlegt gáleysi í störfum sínum að það varði við lög um peningaþvætti. DR segir ekki ljóst hvort að fyrrverandi forstjóri bankans, Thomas Borgen, eða fjármálastjórinn fyrrverandi, Henrik Ramlau-Hansen, séu í hópi þeirra, mál hverra hafa verið fell niður. Borgen lét af stöðu forstjóra árið 2018 eftir að rannsókn leiddi í ljós að um 200 milljarðar evra hafi um árabil verið þvættaðir í útibúi Danske Bank í Eistlandi. Peningurinn kom frá ólöglegri starfsemi í Rússlandi. Fiig tók ekki fram hvort mál allra einstaklinga hafi verið felld niður. Rannsókn á hendur bankanum stendur þó enn yfir og gæti hann átt yfir höfði sér háar sektargreiðslur, meðal annars í Bandaríkjunum.
Danmörk Peningaþvætti norrænna banka Eistland Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira