Maðurinn, sem er 21 árs og heitir Ahmad al-Aliwi Al Issa, var úrskurðaður í áframhaldandi varðhald án möguleika á að fá lausn gegn tryggingu. Þá féllst dómari á beiðni verjanda hans um að Al Issa gengist undir geðmat.
Al Issa er bandarískur ríkisborgari fæddur í Sýrlandi. Hann er ákærður fyrir tíu morð af yfirlögðu ráði, en síðastliðinn mánudag var hann handtekinn með skotsár á læri í kjölfar skotárásar á verslun þar sem tíu manns létu lífið. Fórnarlömbin voru á aldrinum 20 til 65 ára.
Lögregla hefur ekki gefið upp hvað hún telji búa að baki skotárásinni, en Al Issa hefur ekki lýst yfir ábyrgð á henni.

Hótaði að drepa liðsfélaga sína
Denver Post hefur eftir fyrrum bekkjarfélögum Al Issa úr framhaldsskóla að hann hafi verið ofbeldisfullur, skapstyggur og ofsóknaróður á tíma sínum í skóla. Hann gekk í Arvada West framhaldsskólann í Denver á árunum 2015 til 2018.
„Hann var með ógnvekjandi nærveru,“ er haft eftir Dayton Marvel, sem var liðsfélagi Al Issa í glímuliði skólans. Hann segir meðal annars frá því að Al Issa hafi hótað að drepa liðsfélaga sína.
„Á síðasta árinu hans, þegar við glímdum til að sjá hverjir kæmust í aðalliðið, þá tapaði hann sinni keppni. Hann hætti í liðinu og öskraði í búningsklefanum að hann ætlaði að drepa alla. Enginn trúði honum. Okkur fannst þetta bara óþægilegt en enginn gerði neitt í þessu.“