Fótbolti

Sjáðu stoðsendingu Zlatans í fyrsta landsleiknum í fimm ár

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic faðmar markaskorarann Viktor Claesson.
Zlatan Ibrahimovic faðmar markaskorarann Viktor Claesson. getty/David Lidstrom

Zlatan Ibrahimovic lagði upp sigurmark Svía gegn Georgíumönnum í sínum fyrsta landsleik í fimm ár.

Fyrr í þessum mánuði var greint frá því að Zlatan væri snúinn aftur í sænska landsliðið eftir fimm ára fjarveru. Hann lagði landsliðsskóna á hilluna eftir EM 2016.

Zlatan var í byrjunarliði Svía gegn Georgíumönnum í undankeppni HM 2022 í gær. Hann var í framlínunni ásamt Alexander Isak, leikmanni Real Sociedad.

Aðeins eitt mark var skorað í leiknum á Vinavöllum í gær og það kom lítið á óvart að Zlatan hefði verið með puttana í því.

Á 35. mínútu átti Mikael Lustig sendingu inn í vítateig Georgíu á Zlatan. Hann tók boltann á kassann og sendi hann svo á Viktor Claesson. Hann lagði boltann fyrir sig og kom honum framhjá Giorgi Loria í marki Georgíu.

Markið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Svíþjóð 1-0 Georgía

Hinn 39 ára Zlatan var í skýjunum eftir leikinn í leikinn og leið eins og hann hefði verið að spila sinn fyrsta landsleik en ekki þann 117.

„Mér leið vel. Mér leið eins og þetta væri fyrsti landsleikurinn minn. Það var mikið adrenalín í gangi,“ sagði Zlatan eftir leikinn. „Ég held að ég hafi getað gert miklu meira en við unnum leikinn og það var það sem skipti mestu máli.“

Leikurinn í gær var fyrsti landsleikur Zlatans síðan gegn Belgíu í lokaumferð riðlakeppninnar á EM í Frakklandi, 22. júní 2016. Svíar enduðu í neðsta sæti síns riðils og komust ekki í útsláttarkeppnina.

Líklegt þykir að Zlatan leiki með sænska landsliðinu á EM í sumar. Svíar eru í riðli með Spánverjum, Slóvökum og Pólverjum.

Svíar mæta Kósóvómönnum í öðrum leik sínum í undankeppni HM 2022 á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×