Montrezl Harrell átti góða innkomu af bekknum hjá Lakers og lauk leik sem stigahæsti maður vallarins með 24 stig auk þess að taka tíu fráköst en meistaraliðið leikur án sinna skærustu stjarna, LeBron James og Anthony Davis, þessa dagana og hafði tapað fjórum leikjum í röð þegar Lakers mætti Cleveland Cavaliers í nótt.
Montrezl Harrell's double-double propels the @Lakers at Staples Center!
— NBA (@NBA) March 27, 2021
Trez: 24 PTS, 10 REB, 2 STL
Dennis Schroder: 17 PTS, 7 AST, 4 STL
Talen Horton-Tucker: 15 PTS, 2 STL pic.twitter.com/87Od4q5KA8
Boston Celtics gerði sér lítið fyrir og lagði Milwaukee Bucks á útivelli, 114-122, þar sem Jayson Tatum fór mikinn og gerði 34 stig en Giannis Antetokounmpo var atkvæðamestur heimamanna með fjórtán stig.
Það var alvöru tröllaslagur í New Orleans þar sem Nikola Jokic og Zion Williamson tókust á í viðureign Pelicans og Denver Nuggets. Þeir fóru báðir mikinn en Zion gerði 39 stig og tók tíu fráköst á meðan Jokic gerði 37 stig og gaf níu stoðsendingar.
Denver vann leikinn með fimm stiga mun, 108-113.
Career-high 39 POINTS on 16-19 FGM for Zion! @Zionwilliamson @PelicansNBA pic.twitter.com/GDHS818fjz
— NBA (@NBA) March 27, 2021
Í Detroit var James Harden allt í öllu þegar hann mætti með lið sitt, Brooklyn Nets, í heimsókn til Pistons. Harden skoraði 44 stig, tók fjórtán fráköst og gaf átta stoðsendingar þegar Nets vann sigur í hörkuleik, 111-113
44 POINTS for @JHarden13, his highest-scoring game yet with the @BrooklynNets!#BrooklynTogether pic.twitter.com/rTUYKICoUL
— NBA (@NBA) March 27, 2021
Í Dallas réðu Evrópumennirnir ríkjum þegar Indiana Pacers kom í heimsókn. Lettinn Kristaps Porzingis var stigahæstur heimamanna með 31 stig auk þess að rífa niður átján fráköst en Litháinn Domantas Sabonis skoraði 22 stig og tók fimmtán fráköst fyrir gestina sem unnu leikinn örugglega.
Þá vann Minnesota Timberwolves magnaðan sigur á Houston Rockets þar sem heimamenn gerðu síðustu 22 stig leiksins. Á sama tíma fær ekkert stöðvað Utah Jazz um þessar mundir en liðið vann sinn fjórða leik í röð þegar Memphis Grizzlies heimsótti Utah.
Trailing 101-85 with 7:04 left, the @Timberwolves close the game on a 22-0 RUN! #RaisedByWolves pic.twitter.com/rQXVXyAlEm
— NBA (@NBA) March 27, 2021
Úrslit næturinnar
Detroit Pistons - Brooklyn Nets 111-113
Toronto Raptors - Phoenix Suns 100-104
Milwaukee Bucks - Boston Celtics 114-122
Charlotte Hornets - Miami Heat 110-105
Orlando Magic - Portland Trail Blazers 105-112
Minnesota Timberwolves - Houston Rockets 107-101
New Orleans Pelicans - Denver Nuggets 108-113
Dallas Mavericks - Indiana Pacers 94-109
Utah Jazz - Memphis Grizzlies 117-114
Golden State Warriors - Atlanta Hawks 108-124
Los Angeles Lakers - Cleveland Cavaliers 100-86

NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.