NBA dagsins: Sólin skín skært í Phoenix Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. mars 2021 15:02 Devin Booker skoraði 35 stig í sigri Phoenix Suns á Charlotte Hornets. getty/Jacob Kupferman Phoenix Suns heldur áfram að gera það gott í NBA-deildinni í körfubolta og í gær sigraði liðið Charlotte Hornets, 97-101. Phoenix hefur verið sérstaklega gott á útivelli í vetur og unnið sextán af 22 leikjum sínum þar. Úrslitin í leiknum í Charlotte í gær réðust í framlengingu. Staðan eftir venjulegan leiktíma var jöfn, 90-90. Devonte' Graham jafnaði fyrir Charlotte og fékk svo tækifæri til að tryggja heimamönnum sigurinn en skot hans í lokasókn venjulegs leiktíma geigaði. Í framlengingunni reyndust gestirnir sterkari og unnu hana, 11-7, og leikinn, 97-101. Devin Booker skoraði 35 stig fyrir Phoenix og var með fjórar af átta þriggja stiga körfum liðsins. Þriggja stiga nýting Phoenix var aðeins tuttugu prósent en það kom ekki að sök. Chris Paul skoraði sextán stig fyrir Phoenix og DeAndre Ayton var með fjórtán stig og fjórtán fráköst. Phoenix er í 2. sæti Vesturdeildarinnar. Graham skoraði þrjátíu stig fyrir Charlotte og Terry Rozier 22. Charlotte er í 5. sæti Austurdeildarinnar. Í spilaranum hér fyrir neðan má sjá brot úr leikjum Charlotte og Phoenix, Denver Nuggets og Atlanta Hawks og Los Angeles Lakers og Orlando Magic auk flottustu tilþrifa leikja næturinnar. Klippa: NBA dagsins 29. mars
Phoenix hefur verið sérstaklega gott á útivelli í vetur og unnið sextán af 22 leikjum sínum þar. Úrslitin í leiknum í Charlotte í gær réðust í framlengingu. Staðan eftir venjulegan leiktíma var jöfn, 90-90. Devonte' Graham jafnaði fyrir Charlotte og fékk svo tækifæri til að tryggja heimamönnum sigurinn en skot hans í lokasókn venjulegs leiktíma geigaði. Í framlengingunni reyndust gestirnir sterkari og unnu hana, 11-7, og leikinn, 97-101. Devin Booker skoraði 35 stig fyrir Phoenix og var með fjórar af átta þriggja stiga körfum liðsins. Þriggja stiga nýting Phoenix var aðeins tuttugu prósent en það kom ekki að sök. Chris Paul skoraði sextán stig fyrir Phoenix og DeAndre Ayton var með fjórtán stig og fjórtán fráköst. Phoenix er í 2. sæti Vesturdeildarinnar. Graham skoraði þrjátíu stig fyrir Charlotte og Terry Rozier 22. Charlotte er í 5. sæti Austurdeildarinnar. Í spilaranum hér fyrir neðan má sjá brot úr leikjum Charlotte og Phoenix, Denver Nuggets og Atlanta Hawks og Los Angeles Lakers og Orlando Magic auk flottustu tilþrifa leikja næturinnar. Klippa: NBA dagsins 29. mars NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
NBA Tengdar fréttir Denver vængstýfði Haukana Denver Nuggets vann góðan sigur á einu heitasta liði NBA-deildarinnar, Atlanta Hawks, í nótt. Lokatölur 126-102, Denver í vil. 29. mars 2021 07:45 Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Fleiri fréttir Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Sjá meira
Denver vængstýfði Haukana Denver Nuggets vann góðan sigur á einu heitasta liði NBA-deildarinnar, Atlanta Hawks, í nótt. Lokatölur 126-102, Denver í vil. 29. mars 2021 07:45