Búast megi við miklum eldum í þessu ástandi Samúel Karl Ólason skrifar 6. maí 2021 19:19 Slökkviliðsstjórinn á Akranesi segir að búast megi við stórum gróðureldum ef þeir kvikni í því ástandi sem sé í dag. Búið er að lýsa yfir óvissustigi á Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Suðurlandi vegna hættu á gróðureldum.
Undanfarið hefur verið þurrt á þessu svæði og stefnir ekki í neina úrkomu af ráði. Fólk hefur verið beðið um að sýna aðgát. Sjá einnig: Óvissustig vegna gróðurelda frá Eyjafjöllum upp á Snæfellsnes „Það er búið að vera þurrt síðustu daga og gróðurinn orðinn mjög þurr. Nú er kominn þessi sterki vindur, sem við höfum mjög miklar áhyggjur af,“ sagði Jens heiðar Ragnarsson, slökkviliðsstjóri Akraness og Hvalfjarðarsveitar, í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Hann sagði áhyggjurnar í hans umdæmi aðallega snúa að sumarhúsabyggð eins og í Svínadal. Skorradalur hefur einnig verið nefndur í þessu samhengi og Jens sagði það mjög erfitt svæði. Það sé í umdæmi slökkviliðs Borgarbyggðar en slökkvilið hans muni hjálpa þar við, ef til þurfi. „Ef það kviknar eldur í þessum kjarrskógum í sumarbústaðabyggðum og veðrið er eins og það er í dag, þá megum við alveg búast við mjög miklum eldum,“ sagði Jens. Almannavarnir hafa biðlað til fólks að sýna sérstaka aðgát varðandi opin eld á þeim svæðum sem um ræðir.
Akranes Hvalfjarðarsveit Slökkvilið Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Alls kyns jól um allan heim Erlent Fleiri fréttir Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Sjá meira