Versta brekkan orðin breiður göngustígur Kristján Már Unnarsson skrifar 13. maí 2021 22:44 Grafa frá Gísla Grétari Sigurðssyni mótaði göngustíginn um gilið í gær. Borgarfjall fyrir miðri mynd. Nátthagi til vinstri. Nátthagakriki er hins vegar hægra megin undir Borgarfjalli. Efst til hægri sést í Suðurstrandarveg þar sem upphaf gönguleiðarinnar er núna. Egill Aðalsteinsson Aðalgönguleiðin að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli, svokölluð A-leið, er núna orðin mun greiðfærari og hættuminni en áður. Leiðin var lokuð í gær meðan unnið var að framkvæmdum en opnuð á ný í gærkvöldi. „
Með þessum lagfæringum þarna er búið að taka af langhættulegasta staðinn á leiðinni upp að eldgosinu,“ sagði Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, en myndir af stígagerðinni voru sýndar í fréttum Stöðvar 2. Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur. Viðtalið var tekið við Suðurstrandarveg á þeim stað þar sem talið er að hraun muni fyrst fara yfir, nái það á annað borð að renna niður Nátthaga.Egill Aðalsteinsson Hann vísar til endurbóta á gönguleiðinni um bratta brekku sem liggur upp frá Nátthagakrika við norðanvert Borgarfell og upp á Fagradalsfjall sunnan Geldingadala. Fyrir síðustu helgi var breiður stígur skorinn í neðri hluta brekkunnar með þægilegum gönguhalla og í gærkvöldi var svo lokið við að skera samskonar stíg í efri hluta brekkunnar, sem liggur um gil. Erlendir ferðamenn gengu nýja stíginn í gær meðan enn var verið að vinna í honum.Egill Aðalsteinsson „Það hafa orðið meiðsl þarna og beinbrot jafnvel,“ sagði Fannar bæjarstjóri. „Tvö og þrjú ökklabrot á dag, - eða mjög slæm slys, þannig séð. Þá er þetta bara slysavarnamál að koma þessu í lag,“ sagði Jón Haukur Steingrímsson, jarðverkfræðingur hjá Verkfræðistofunni Eflu, í viðtali á Stöð 2 fyrr í vikunni en hann hefur komið að endurbótum á gönguleiðinni. Nýi stígurinn í neðri hluta brekkunnar var lagður fyrir síðustu helgi. Áður fengu margir byltu við að klöngrast niður skriðuna vinstra megin. Efst til vinstri má sjá staðinn þar sem kaðallinn var áður.KMU Upphaflega var kaðall settur upp á erfiðasta hluta A-leiðarinnar til að hjálpa göngufólki að fara um mesta brattann. Leiðinni var síðar breytt og hún látin liggja um gil örlítið austar. Nýjasti stígurinn liggur einmitt um það gil og er hann það breiður að björgunarsveitarmenn gátu í gærkvöldi ekið jeppa um hann alla leið upp á fjallið. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða kostar gerð stíganna. Verkið annast landeigendur Hrauns, sem eru jarðvinnuverktakar. Fjallað var um nýja stíginn og stöðuna á eldgosinu í beinni útsendingu í fréttum Stöðvar 2, sem sjá má hér: Hér má sjá ítarlegra viðtal við bæjarstjórann:
Eldgos í Fagradalsfjalli Ferðamennska á Íslandi Grindavík Almannavarnir Björgunarsveitir Tengdar fréttir Bætt aðgengi kom sér vel við björgun slasaðrar konu Sjúkraflutningamenn og björgunarsveitarfólk komu konu til aðstoðar sem slasaðist á gossvæðinu við Fagradalsfjall á tíunda tímanum í kvöld. Bætt aðgengi varð til þess að hægt var að koma konunni til aðstoðar á skömmum tíma. 13. maí 2021 21:55 Telja varnargarða ekki mega bíða lengi Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir áhyggjuefni ef hrauntaumur rennur niður í Nátthaga og heldur þaðan áfram í átt að Suðurstrandarvegi. Bæjarráð Grindavíkur ályktaði í síðustu viku um það að gera þyrfti allt sem mögulegt væri til þess að hefta framrás hraunsins niður í Nátthaga og hefur nú þegar verið ráðist í hönnun á þess til gerðum mannvirkjum. 13. maí 2021 16:00 Brennheitt gjallið kveikir gróðurelda fjarri gígnum Glóandi gjall, sem þeytist hátt til himins úr eldgígnum á Fagradalsfjalli, hefur náð að kveikja gróðurelda í yfir eins kílómetra fjarlægð og var gossvæðið af þeim sökum lokað í dag. Kapp er nú lagt á bæta göngustíginn vegna tíðra slysa, með tveimur til þremur ökklabrotum á dag. 10. maí 2021 21:32 Hérna vilja Almannavarnir ekki missa hraunið lengra Eldgosið í Fagradalsfjalli er núna tvöfalt öflugra en það hefur lengst af verið, samkvæmt nýjum mælingum Jarðvísindastofnunar. Almannavarnir eru í viðbragðsstöðu með að láta ryðja upp varnargörðum til að hindra að hraunrennsli fari í Nátthaga og ógni þar með Suðurstrandarvegi. 11. maí 2021 21:31 Kostnaður ríkisins við uppbyggingu kringum Fagradalsfjall um 40 milljónir Búist er við að framkvæmdir við eldgosið í Fagradalsfjalli hefjist í vikunni að sögn ferðamálastjóra. Ríkið leggi nú þegar til 40 milljónir króna til verkefna þar og landeigendur greiði fyrir framkvæmdir á bílastæðum og salernisaðstöðu. Gert er ráð fyrir að gjald verði tekið fyrir bílastæði á svæðinu. 5. maí 2021 12:04 Mest lesið Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Vann 131 milljón króna á kjördegi Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Erlent Mynda Hildur og Pétur meirihluta eftir allt saman? Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Fleiri fréttir Lokatölur úr Ásahreppi: Ísleifur og Helga efst með 86 atkvæði Nágrannaslagur í Vesturbænum 94 prósenta kjörsókn í Árneshreppi Fengu boð í grillveislu en ekki að kjósa Lokatölur úr Skaftárhreppi: Meirihlutinn kolfallinn Aðalsteinn verður áfram sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhreppur fyrstur til að birta lokatölur Vann 131 milljón króna á kjördegi Mynda Hildur og Pétur meirihluta eftir allt saman? Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Sjá meira
Bætt aðgengi kom sér vel við björgun slasaðrar konu Sjúkraflutningamenn og björgunarsveitarfólk komu konu til aðstoðar sem slasaðist á gossvæðinu við Fagradalsfjall á tíunda tímanum í kvöld. Bætt aðgengi varð til þess að hægt var að koma konunni til aðstoðar á skömmum tíma. 13. maí 2021 21:55
Telja varnargarða ekki mega bíða lengi Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir áhyggjuefni ef hrauntaumur rennur niður í Nátthaga og heldur þaðan áfram í átt að Suðurstrandarvegi. Bæjarráð Grindavíkur ályktaði í síðustu viku um það að gera þyrfti allt sem mögulegt væri til þess að hefta framrás hraunsins niður í Nátthaga og hefur nú þegar verið ráðist í hönnun á þess til gerðum mannvirkjum. 13. maí 2021 16:00
Brennheitt gjallið kveikir gróðurelda fjarri gígnum Glóandi gjall, sem þeytist hátt til himins úr eldgígnum á Fagradalsfjalli, hefur náð að kveikja gróðurelda í yfir eins kílómetra fjarlægð og var gossvæðið af þeim sökum lokað í dag. Kapp er nú lagt á bæta göngustíginn vegna tíðra slysa, með tveimur til þremur ökklabrotum á dag. 10. maí 2021 21:32
Hérna vilja Almannavarnir ekki missa hraunið lengra Eldgosið í Fagradalsfjalli er núna tvöfalt öflugra en það hefur lengst af verið, samkvæmt nýjum mælingum Jarðvísindastofnunar. Almannavarnir eru í viðbragðsstöðu með að láta ryðja upp varnargörðum til að hindra að hraunrennsli fari í Nátthaga og ógni þar með Suðurstrandarvegi. 11. maí 2021 21:31
Kostnaður ríkisins við uppbyggingu kringum Fagradalsfjall um 40 milljónir Búist er við að framkvæmdir við eldgosið í Fagradalsfjalli hefjist í vikunni að sögn ferðamálastjóra. Ríkið leggi nú þegar til 40 milljónir króna til verkefna þar og landeigendur greiði fyrir framkvæmdir á bílastæðum og salernisaðstöðu. Gert er ráð fyrir að gjald verði tekið fyrir bílastæði á svæðinu. 5. maí 2021 12:04