„Það var eiginlega tilviljun að ég kynntist hljómsveitinni Kaleo,“ útskýrir Sindri í hlaðvarpsþættinum Bransakjaftæði. Hann uppgötvaði sveitina tveimur mánuðum áður en þeir vöktu athygli fyrir þátttöku sína í Músíktilraunum.
Sindri vissi af nokkrum strákum úr Mosfellsbænum sem væru að semja og spila músík og bókaði þá á litla tónleika sem hann var að skipuleggja.
„Mér leist alveg ótrúlega vel á strákana og svo fórum við að spjalla og ég sagði þeim að þeir ættu örugglega mikinn séns. Ég spurði hvort þeir væru komnir með umboðsmann og þá segir Davíð trommari sveitarinnar: „Getur þú ekki bara verið umboðsmaðurinn okkar?“ og ég sagði já.“
Ekkert sérstaklega músíkalskur
Sindri var umboðsmaður Kaleo frá 2013 þar til þeir fluttu til Bandaríkjanna. Þá ákvað hann að byggja upp sína eigin umboðsskrifstofu hér heima, Mid Atlantic Entertainment.
„Ég heillaðist af bransahliðinni því ég er ekkert sérstaklega músíkalskur,“ en ég elska tónlist og held að ég sé með þokkalegt eyra, segir Sindri.
Hjá Mid Atlantic Entertainment voru til dæmis listamenn eins og Emmsjé Gauti, Salka Sól, Úlfur Úlfur og Glowie. Eins og mörgum er kunnugt flutti Glowie til Bretlands til þess að starfa við tónlist.
Sindri segir hér frá því hvernig hann kom að plötusamningum KALEO og Glowie í Bandaríkjunum og Bretlandi og hvernig var að byrja og hætta með umboðsskrifstofu á Íslandi. Þáttinn má heyra í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.