
Kaleo

Myndaveisla: Rauð jól hjá Jökli í Kaleo
Jökull Júlíusson í Kaleo heldur í þá hefð að eyða jólunum alltaf á Íslandi. Hann stóð fyrir góðgerðarviðburðinum Rauðu jólin í Hlégarði, Mosfellsbæ síðastliðinn fimmtudag.

Andinn á tökustað í Glæstum vonum: „Spurði fyrst hvort ég gæti verið vondur tvífari“
Dröfn Ösp Snorradóttir heimsótti tökustað hjá Glæstum vonum í Íslandi í dag í vikunni og hitti leikarana og rokkstjörnuna Jökul Júlíusson söngvara Kaleo sem kom fram í þáttunum sem gestaleikara á dögunum.

Jökull leikur sjálfan sig í Glæstum vonum: „Þetta er kannski meira í gríni gert“
Jökull Júlíusson söngvari hljómsveitarinnar Kaleo segir það hafi verið skemmtilegt ævintýri að leika sjálfan sig í sápuóperunni Glæstum vonum. Hann fékk boð um hlutverkið í þáttunum eftir að hafa komið fram í veislu hjá Andrea Bocelli.

Kaleo sló í gegn hjá Jimmy Kimmel
Stórhljómsveitin Kaleo steig á svið í spjallþætti Jimmy Kimmel í gærkvöldi. Sveitin flutti þar lag sitt Rock N Roller, sem kom út fyrr á þessu ári.

Kaleo gefur út sitt fyrsta lag í þrjú ár
Stórhljómsveitin Kaleo gaf út sitt fyrsta lag í þrjú ár í dag, Lonely Cowboy. Tónlistarmyndband við lagið, sem tekið var upp í Colosseum í Róm, var jafnframt frumsýnt í dag.

Kaleo með góðgerðartónleika vegna harmleiksins í Svíþjóð
Meðlimir Kaleo hafa ákveðið að blása til góðgerðartónleika í kvöld þar sem hljómsveitin er stödd í Stokkhólmi til styrktar fjölskyldna þeirra sem lentu í rússíbanaslysi í skemmtigarðinum Gröna Lund um helgina þar sem einn lést og tíu slösuðust. Sveitin átti að koma fram í skemmtigarðinum í gær.

Sema gagnrýnir Ísraelstónleika Kaleo
Sema Erla Serda, aktívisti, skýtur föstum skotum á hljómsveitina Kaleo í nýlegri Facebook færslu vegna fyrirhugaðra tónleika þeirra í Ísrael seinna í mánuðinum.

Kaleo: Ekki spila í Ísrael
Í ár eru 75 ár síðan hundruðir þúsunda íbúa Palestínu voru hraktir frá heimalandi sínu, heimili þeirra jöfnuð við jörðu og landi þeirra stolið í þeim tilgangi að stofna Ísraelsríki. Síðan þá hafa ísraelsk stjórnvöld hernumið stærstan hluta Palestínuríkis, hrakið milljónir á flótta, skipulega myrt fólk og börn.

Jökull í Kaleo og Telma trúlofuð
Jökull Júlíusson söngvari Kaleo og kærasta hans til margra ára Telma Fanney Magnúsdóttir eru trúlofuð. Samkvæmt færslu frá Telmu á Instagram var stóra spurningin borin upp þann 24. maí og var svarið við henni auðvelt fyrir hana, já.

Júníus Meyvant fylgir Kaleo á tónleikaferðalagi um Evrópu
Tónlistarmaðurinn Júníus Meyvant mun hita upp fyrir íslensku hljómsveitina Kaleo á tónleikaferðalagi þeirra um Evrópu. Ævintýrið hefst 4. júní í Berlín og endar í Aþenu 6. júlí. Blaðamaður sló á þráðinn og tók púlsinn á Júníusi.

Sjáðu KALEO flytja lagið Backbone í íshelli við Breiðamerkurjökul
Mosfellska hljómsveitin Kaleo sendi í gær frá sér myndband þar sem sjá má hljómsveitina flytja lagið Backbone í íshelli við Breiðarmerkurjökul. Lagið kom út á plötunni Surface Sounds á síðasta ári en um svipað leyti var myndbandið tekið upp í fimmtán stiga frosti.

Treyjur Aftureldingar seldar um allan heim
Afturelding gæti verið að eignast mun fleiri stuðningsmenn, um allan heim, því treyjur knattspyrnuliðs félagsins verða til sölu á tónleikum hljómsveitarinnar Kaleo í ár.

Varð umboðsmaður Kaleo fyrir tilviljun
Sindri Ástmarsson hafði starfað sem plötusnúður og útvarpsmaður í dágóðan tíma þegar hann vildi leita á ný mið. Áður en hann vissi af var hann orðinn umboðsmaður hljómsveitarinnar Kaleo.

Hljómsveitin KALEO framan á treyjum Aftureldingar
Lið Aftureldingar í meistaraflokki karla í knattspyrnu mun bera merki hljómsveitarinnar KALEO framan á treyjum sínum næstu tvö árin. Afturelding gaf út fréttatilkynningu þess efnis í gærkvöld.

Daði fær silfurplötu í Bretlandi
Daði Freyr hefur fengið silfurplötu í Bretlandi fyrir lagið Think About Things. Um er að ræða söluviðurkenningu sem vottar að lagið seldist í 200 þúsund eintökum þar í landi.

Kaleo flutti lag hjá Jimmy Kimmel í húsnæði Máls og Menningar
Í gærkvöldi kom íslenska sveitin Kaleo fram í einum vinsælasta spjallþætti heims, Jimmy Kimmel Live.

Kaleo gefur út myndband sem tekið var upp við eldgosið
Í byrjun apríl sendi Kaleo frá sér lagið Skinny en það er fimmta lagið sem sveitin gefur út af komandi plötu sveitarinnar.

Ljúfir tónar Kaleo undir opnunaratriði Masters-mótsins
Lagið I Want More úr smiðju íslensku hljómsveitarinnar Kaleo heyrðist undir atriði sem spilað var í sjónvarpstækjum víða um heim á fimmtudag, rétt áður en Masters-mótið, eitt stærsta golfmót heims, var sett.

Söng lag með Kaleo og flaug áfram
Hunter Metts mætti í áheyrnarprufu í American Idol á dögunum og hafði hann í raun mætt í tvígang áður í þættina en ekki gengið nægilega vel.

KALEO frumsýnir myndband sem var heldur betur krefjandi í tökum
Snemma á árinu 2020 sendi hljómsveitin KALEO frá sér fyrstu lögin af komandi plötu en það voru lögin I Want More og Break My Baby.

Kaleo kom fram í þætti Seth Meyers og það á Elliðavatni
Í gærkvöldi komu þeir Jökull Júlíusson og Þorleifur Gaukur Davíðsson fram í þættinum Late Night með Seth Meyers.

Kaleo sló í gegn hjá Stephen Colbert
Íslenska rokksveitin Kaleo steig á svið hjá spjallþáttastjórnandanum Stephen Colbert í gærkvöldi og komu heldur betur vel fyrir.

Rokkaralífið einangrandi
Jökull Júlíusson, söngvari hljómsveitarinnar KALEO, er í heljarinnar forsíðu viðtali í nýjasta tölublaði Mannlífs.

Kaleo gefur út tvö ný lög í einu
Sveitin Kaleo hefur sent frá sér tvö ný lög sem voru birt á YouTube síðu sveitarinnar rétt í þessu.

Jökull segir Rolling Stones hafa gengið á eftir Kaleo
Rokkgoðsagnirnar í Stones vildu ólmar fá Kaleo til að spila með sér.

Kaleo hitaði upp fyrir Rolling Stones í þriðja skiptið
Íslenska hljómsveitin Kaleo er nú reynslunni ríkari eftir að hafa spilað á tvennum tónleikum með Rolling Stones.

Ég er fæddur ferðalangur
Minnst tólf munnhörpur fylgja Þorleifi Gauki Davíðssyni hvert sem hann fer – og það er víða. Hann er munnhörpuleikari að atvinnu og hefur túrað með Kaleo að undanförnu.

Ætla að semja og æfa nýtt efni á Íslandi í janúar
Íslenska hljómsveitin Kaleo hefur slegið í gegn utan landsteinanna undanfarin misseri.

Kaleo mest gúgglaðir
Knattspyrnumaðurinn Gylfi Sigurðsson var sá Íslendingur sem Íslendingar gúggluðu hvað oftast á árinu.

Kaleo og Jóhann Jóhannsson tilnefnd til Grammy
Jóhann Jóhannsson er tilnefndur til Grammy-verðlauna fyrir bestu tónlistina í kvikmynd en hann gerði tónlistina fyrir kvikmyndina Arrival sem kom út árið 2016.