Leicester fær markahrók frá Sambíu Sindri Sverrisson skrifar 30. júní 2021 16:00 Patson Daka er kominn í Leicester-treyjuna. lcfc.co.uk Leicester hefur gengið frá kaupum á Patson Daka, framherja Red Bull Salzburg, en kaupverðið er sagt nema 23 milljónum punda eða jafnvirði tæplega fjögurra milljarða króna.
Daka var ofarlega á óskalista Brendans Rodgers, knattspyrnustjóra Leicester, fyrir sumarið enda fór hann mikinn á síðustu leiktíð. Þessi 22 ára landsliðsmaður Sambíu skoraði alls 34 mörk í 42 leikjum fyrir Salzburg á síðustu leiktíð og varð markahæstur í austurrísku úrvalsdeildinni með 27 mörk í 28 leikjum. Daka varð austurrískur meistari með Salzburg og kjörinn leikmaður ársins. It's time to #WelcomePatson! pic.twitter.com/1XxLxCFAul— Leicester City (@LCFC) June 30, 2021 Daka kom til Salzburg árið 2017 frá uppeldisfélagi sínu Kafue Celtic. Hann gerði samning til fimm ára við Leicester. „Ég hef fylgst með Leicester frá því að liðið vann ensku úrvalsdeildina. Mér finnst þetta fullkominn staður fyrir mig, enda er þetta lið sem berst um titla. Ég veit að þetta verður ekki auðvelt en ég tel mig tilbúinn til að takast á við þessa áskorun,“ sagði Daka. Daka er ekki fyrsti leikmaðurinn sem fer frá Salzburg í ensku úrvalsdeildina. Liverpool sótti þangað þríeykið Sadio Mané, Naby Keita og Takumi Minamino.
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti ÍA-Stjarnan 5-1: Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Íslenski boltinn Lokadagur heimsleikanna í CrossFit: Í hvaða sætum enda Íslendingarnir? Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Kvenkyns dómari slasaðist í slagsmálum í vináttuleik Fótbolti Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Fleiri fréttir Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Sjá meira