Stólarnir halda áfram að safna liði: Hafa samið við sænskan landsliðsmann Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. júlí 2021 11:27 Stólarnir eru stórhuga fyrir næsta tímabil. vísir/hulda margrét Tindastóll heldur áfram að safna liði fyrir næsta tímabil og hefur nú samið við reynslumikinn sænskan landsliðsmann. Thomas Massamba hefur skrifað undir samning við Tindastól og mun leika með liðinu í Domino's deild karla í körfubolta á næsta tímabili. Þetta kemur fram á Feykir.is. Massamba er 35 ára bakvörður og hefur leikið með sænska landsliðinu. Hann hefur farið víða á ferlinum og unnið titla í Svíþjóð, Búlgaríu, Kýpur, Kósóvó og Tékklandi. Síðast lék Massamba í Belgíu. Stólarnir eru greinilega stórhuga en auk Massambas hafa þeir samið við Sigurð Gunnar Þorsteinsson, Sigtrygg Arnar Björnsson, Bandaríkjamanninn Javon Bess og Taiwo Badmus sem er með breskt-írskt vegabréf. Sigurður kom frá Hetti en Sigtryggur og Badmus frá Básquet Coruna á Spáni. Sigtryggur lék með Tindastóli tímabilið 2017-18 og varð þá bikarmeistari með liðinu. Á síðasta tímabili endaði Tindastóll í 8. sæti Domino's deildarinnar og tapaði fyrir Keflavík, 3-0, í 1. umferð úrslitakeppninnar.
Thomas Massamba hefur skrifað undir samning við Tindastól og mun leika með liðinu í Domino's deild karla í körfubolta á næsta tímabili. Þetta kemur fram á Feykir.is. Massamba er 35 ára bakvörður og hefur leikið með sænska landsliðinu. Hann hefur farið víða á ferlinum og unnið titla í Svíþjóð, Búlgaríu, Kýpur, Kósóvó og Tékklandi. Síðast lék Massamba í Belgíu. Stólarnir eru greinilega stórhuga en auk Massambas hafa þeir samið við Sigurð Gunnar Þorsteinsson, Sigtrygg Arnar Björnsson, Bandaríkjamanninn Javon Bess og Taiwo Badmus sem er með breskt-írskt vegabréf. Sigurður kom frá Hetti en Sigtryggur og Badmus frá Básquet Coruna á Spáni. Sigtryggur lék með Tindastóli tímabilið 2017-18 og varð þá bikarmeistari með liðinu. Á síðasta tímabili endaði Tindastóll í 8. sæti Domino's deildarinnar og tapaði fyrir Keflavík, 3-0, í 1. umferð úrslitakeppninnar. Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Dominos-deild karla Tindastóll Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira