Parada sagði í Instagramfærslu í gær að hann ætlaði ekki að þiggja bólusetningu að læknisráði. Hann hafi smitast áður og telji sig munu lifa af aðra sýkingu frekar en bólusetningu.
Hann óttast að fá Guillain-Barré taugasjúkdóminn sem talinn er vera möguleg aukaverkun sjúkdómsins. Hann segist hafa fengið sjúkdóminn í barnæsku í kjölfar bólusetningar.
„Þar sem ég get ekki hlýtt því sem virðist vera að verða skylda í bransanum, hefur verið ákveðið að það sé hættulegt að umgangast mig, í stúdíóinu og á tónleikaferðalagi,“ segir Parada.
„Ég minnist á þetta af því þið munuð ekki sjá mig á komandi tónleikum. Ég vil líka deila sögu minni með sérhverjum sem finnur fyrir eymdinni og einangruninni sem fylgir því að vera skilinn út undan,“ bætti hann við.