Dregur nokkuð úr vörninni eftir því sem mánuðirnir líða Hólmfríður Gísladóttir skrifar 25. ágúst 2021 07:42 Bóluefnin veita engu að síður góða vörn gegn alvarlegum veikindum og dauðsföllum. epa/Ciro Fusco Vísindamenn segja nokkuð draga úr vörn bóluefna Pfizer og AstraZeneca eftir því sem líður frá bólusetningu. Við þessu sé þó að búast og að bóluefnin veiti áfram góða vörn.
Um er að ræða niðurstöður rannsóknar þar sem PCR niðurstöður fleiri en milljón einstaklinga voru skoðaðar. Allir áttu þeir sameiginlegt að hafa verið fullbólusettir með bóluefnunum frá Pfizer eða AstraZeneca. Eftir einn mánuð reyndist bóluefnið frá Pfizer veita 88 prósent vörn gegn Covid-19 og 74 prósent vörn eftir fimm til sex mánuði. Vörn Astra Zeneca fór úr 77 prósentum í 67 prósent eftir fjóra til fimm mánuði. Vísindamennirnir segja að þrátt fyrir að bólusettir séu að greinast með Covid-19 veiti bóluefnin góða vörn gegn alvarlegum veikindum og dauðsföllum. Heilbrigðisyfirvöld á Bretlandseyjum telja að bólusetningarátakið þar í landi hafi bjargað 84.600 mannslífum og komið í veg fyrir 23 milljón smit. Tim Spector, sem fór fyrir áðurnefndri rannsókn, segist gera ráð fyrir að vörnin gæti dottið niður í 50 prósent í vetur, sem gæti kallað á örvunarskammtagjöf. Aðrir vísindamenn segja hins vegar of snemmt að segja til um það. Þá bendir ýmislegt til þess að þeir sem hafa þegar fengið Covid hafi í raun fengið „náttúrlegan“ örvunarskammt og þurfi ekki á þriðju sprautunni að halda.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Bretland Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Erlent Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Erlent Fleiri fréttir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Sjá meira