Lof
Viktor Örlygur Andrason
Víkingar kafsigldu Íslandsmeistara Vals í fyrri hálfleik er liðin mættust í toppslag deildarinnar á Heimavelli Hamingjunnar í Fossvogi. Viktor Örlygur hefur staðið sig með sóma það sem af er sumri en naut sín manna best í stórleiknum.
Ekki nóg með að vera sem ryksuga á alla lausa bolta þá skoraði hann að öllum líkindum eitt af mörkum sumarsins þegar hann kom Víking í 2-0.
Sölvi Geir Ottesen
Annar Víkingur sem fær hrós fyrir sína frammistöðu. Var stillt upp nokkuð óvænt í hægri bakverði en leysti það með sóma. Svo átti hann eina af „tæklingum“ ársins ef ekki aldarinnar.
Emil Atlason
Sóknarmaðurinn er hvað þekktastur fyrir hæfileika sína í loftinu en það hefur lítið gengið hjá honum að koma knettinum í netið í sumar. Hann ákvað því að prófa að þruma einfaldlega á markið er Stjarnan vann 2-0 sigur á Fylki í fallbaráttuslag. Boltinn söng í netinu og spurning hvort Emil láti ekki vaða oftar í þeim leikjum sem eftir eru.
Kristinn Steindórsson
Ef Breiðablik verður Íslandsmeistari má segja að upprisa Kristins sé fullkomnuð. Eftir að hafa verið svo gott sem gleymdur og grafinn samdi hann við uppeldisfélagið Breiðablik fyrir síðasta tímabil. Spilaði nokkuð vel í fyrra en hefur verið frábær það sem af er tímabili nú.
Skoraði fyrra markið í 2-0 útisigri Breiðabliks á KA ásamt því að leggja það síðara upp. Með sigrinum fóru Blikar á toppinn.
Stefán Árni Geirsson
Stefán Árni lagði upp fyrra mark KR í 2-0 útisigri á ÍA. Annar leikurinn í röð sem Stefán Árni leggur upp en í bæði skiptin er það Kjartan Henry Finnbogason sem nýtur góðs af. Ef Stefán Árni heldur þessu áfram verður hann illviðráðanlegur á næstu árum.
Last
Fyrri hálfleikur Vals
Það var ekki að sjá að Valsmenn væru á toppi deildarinnar þegar þeir mættu á Heimavöll Hamingjunnar. Þeir áttu engin svör við leik Víkinga og voru í raun heppnir með að vera aðeins 2-0 undir í hálfleik. Spilamennskan skánaði aðeins í síðari hálfleik en það var aðallega því Víkingar leyfðu gestunum að klappa boltanum meira.
Andleysi Fylkis
Leikur Stjörnunnar og Fylkis var upp á líf og dauða, svona svo gott sem. Bæði lið voru með 16 stig, þremur stigum fyrir ofan fallsæti. Það var ekki að sjá á spilamennsku Fylkis sem var hvorki fugl né fiskur. Liðið þarf að girða sig í brók ætli það ekki að spila í Lengjudeildinni næsta sumar.
Misheppnað boð Kópacabana
Ekki beint last en það má með sanni segja að stuðningsmannasveit Breiðabliks, Kópacabana, hafi lesið vitlaust í aðstæður er hún bað stuðningsmenn Þórsara um hjálp í stúkunni á Greifavellinum.
Ljóst er að rígurinn milli Þórs og KA er enginn þegar kemur að ríg Akureyringa við fólk frá höfuðborginni. Því komust meðlimir Kópacabana fljótt að.

Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.