Angjelin Sterkaj fer fram á refsileysi Árni Sæberg skrifar 17. september 2021 18:56 Angjelin Sterkaj, sem játað hefur að hafa orðið Armando Beqirai að bana, í dómsal. Angjelin Sterkaj, sem er einn þeirra sem ákærð eru fyrir morðið á Armando Beqiri, fer fram á að honum verði ekki gerð refsing á grundvelli þess að hann hafi einungis farið út fyrir lögmæta neyðarvörn vegna þess að hann hafi orðið svo skelfdur að hann hafi ekki getað gætt sín fullkomlega. Hann heldur því fram að hann hafi gripið til örþrifaráðs þegar hann skaut Armando margsinnis þann 13. febrúar síðastliðinn í Rauðagerði.
Þetta kemur fram í greinargerð sem lögmaður Angjelins gerði fyrir hans hönd og fréttastofa hefur undir höndum. Í greinargerðinni er mikil áhersla lögð á þá atburðarás sem á að hafa valdið því að Angjelin hafi séð sér þann kost einan færan að skjóta Armando Beqiri. Armando hafi verið viðriðinn skipulagða glæpastarfsemi Lögmaður Angjelins vísar meðal annars í orð Margeirs Sveinssonar lögreglumanns á blaðamannafundi þann 26. mars til rökstuðnings þess að Armando hafi tengst skipulagðri glæpastarfsemi. Á fundinum hafi Margeir einfaldlega sagt „Við teljum að svo hafi verið, já“ aðspurður hvort Armando tengdist skipulagðri brotastarfsemi. Þá segir í greinargerðinni að yfirlýsing Margeirs styðjist við ýmis gögn úr rannsókn málsins, þar á meðal svarta minnisbók sem innihaldi skuldaralista. Einnig er minnst á að í gögnum málsins segi að lögregla hafi upplýsingar um að Armando Beqiri hafi sést funda með vel þekktum aðilum í fíkniefnaheiminum á Íslandi. Angjelin hafi verið hótað í byrjun árs Í greinargerðinni segir að Armando hafi boðað Angjelin á fund sinn í byrjun árs 2021. Þar hafi verið verið fyrir tveir menn sem hafi auk Armandos krafist þess að hann hefði milligöngu um að rukka Anton Kristinn Þórarinsson um sekt. Anton Kristinn sagðist við vitnaleiðslu ekkert kannast við umrædda sekt. Þá segir að Angjelin hafi verið tekinn hálstaki og honum hent utan í vegg auk þess að honum hafi verið hótað að hann yrði skorinn á háls ásamt ungum syni sínum. Hann hafi þá sagst myndi gera hvað sem Armando og félagar bæðu um í því skyni að komast lífs af. Lögreglan hafi vitað af byssueign Angjelins Því er haldið fram í greinargerðinni að Angjelin hafi útvegað sér byssu sem var ætlað að gera Armando ljóst að af honum stæði ógn. Hann hafi því kappkostað við að hafa byssuna á sér öllum stundum til þess að ekki yrði ráðist á hann aftur. Þá segir að lögregla hafi vitað af byssueign Angjelins og að innanhústölvupóstur lögreglu frá 19. janúar sanni það. „Telur ákærði að lögreglan hafi vitað að hann hafi ekki ætlað að nota hana að fyrra bragði því ellegar hefði lögreglan vitanlega tekið byssuna af honum,“ segir í greinargerðinni. Hótanir hafi haldið áfram Í greinargerðinni segir að þann 11. febrúar, tveimur dögum fyrir andlát Armandos, hafi þeir Angjelin og Armando talast við í síma. Armando hafi viljað vita hvar Angjelin væri staddur enda ætlaði hann að koma og skera Angjelin og son hans á háls. Þá hafi Angjelin sagt að þeir skyldu hittast eftir helgina, en 11. febrúar var fimmtudagur, en Armando ekki viljað una því. Þá hafi þeir rifist með tilheyrandi líflátshótunum. Angjelin hafi gefið lítið fyrir hótanir Armandos og sagt að „hann myndi ekki eiga séns því hann myndi þá fylla maga hans af byssukúlum.“ Símtalið hafi endað á þessum nótum. Lífshættulegt hafi verið að mæta á fyrirframákveðinn fund Í greinargerðinni segir að Angjelin hafi þekkt þankagang Armandos og félaga hans sem hafi hótað að drepa hann. Hann hafi vitað að þeir menn væru stórhættulegir og að gögn málsins bendi ekki til að um vænisýki hafi verið að ræða af hálfu Angjelins. Það hafi verið undir þeim kringumstæðum sem Angjelin ákvað að mæta einn á fund Armandos kvöldið örlagaríka. Það hafi verið ómögulegt og lífshættulegt að mæta á fund sem ákveðið hafi verið að halda mánudaginn 14. febrúar. Angjelin ákvað að vitja Armandos að heimili hans í Rauðagerði.Vísir/Vésteinn Angjelin hafi séð þann kost einan að skjóta Armando Angjelin heldur því fram að hann vitað að von væri á hverju sem er frá Armando og að hann gæti þurft að verja sig. Því hafi hann haft byssu í hönd þegar þeir hittust. Þá segir að þegar Angjelin hafi ætlað að viðra sættir hafi Armando, sem hafi verið rammur að afli, veist að honum. Angjelin hafi þá þegar fyllst uppnámi og gert sér grein fyrir því að Armando myndi ekki láta af hótunum í garð hans og sonar hans. Hann hafi því ekki séð annan kost í stöðunni en að skjóta Armando þar til hann lést. Angjelin skuli ekki refsað vegna ákvæðis um neyðarvörn Aðalkrafa Angjelins í málinu er að honum verði ekki gerð refsing fyrir að ráða Armando af dögum. Hann neitar ekki sök en segir að ákvæði almennra hegningarlaga um neyðarvörn mæli fyrir um að honum skuli ekki gerð refsing. Ljóst er að hefðbundin neyðarvörn heimilar ekki beitingu skotvopns þegar óvopnaður maður ræðst að þeim sem hyggst beita neyðarvörn. Hins vegar segir í greinargerðinni að í annarri málsgrein tólftu greinar almennrar hegningarlaga segi að hafi maður farið út fyrir takmörk leyfilegrar neyðarvarnar, og ástæða þess er sú, að hann hefur orðið svo skelfdur eða forviða, að hann gat ekki fullkomlega gætt sín, skal honum ekki refsað. Þegar horft sé til aðdraganda verknaðarins, sér í lagi hótana Armandos í garð Angjelins og sonar hans, tengsla Armandos við skipulagða brotastarfsemi og þeirrar hættu sem stafaði að Angjelin á verknaðarstundu, verði að telja að skilyrði ákvæðisins sé fullnægt og því beri ekki að gera Angjelin refsingu þrátt fyrir mögulega sakfellingu. Fréttin hefur verið uppfærð. Í upphaflegri fyrirsögn sagði að Angjelin bæri fyrir sig neyðarvörn. Lögmaður hans hefur bent á að það hafi verið rangt enda væri það krafa um sýknu.
Morð í Rauðagerði Dómsmál Reykjavík Tengdar fréttir „Ég þekki þessa hluti, þetta eru ekki manneskjur“ Góðvinur og samstarfsmaður Armando Beqirai var harðorður í garð sakborninga í Rauðagerðismálinu svokallaða þegar hann bar vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann sagði sakborningana fjóra ekki manneskjur heldur hluti. 15. september 2021 17:01 Atlagan í Rauðagerði tók innan við mínútu Sérfræðingur í að vinna myndefni kom fyrir dóminn í Rauðagerðismálinu í dag og útskýrði hvernig hann hefði notað upplýsingar úr ólíkum áttum, svo sem eftirlitsmyndavélum og farsímagögn, til að búa til myndband sem sýnir atburðarásina laugardagskvöldið 13. febrúar þegar Armando Beqirai var ráðinn bani við heimili sitt í Rauðagerði í Reykjavík. 14. september 2021 14:20 Aldrei séð skotvopn á heimilinu í Rauðagerði Ekkja Armando Beqirai, sem var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt við Rauðagerði í febrúar, segir að ekkert skotvopn hafi verið geymt á heimili þeirra, þrátt fyrir staðhæfingu Angjelins Sterkaj um það fyrir dómi í gær. Þetta kom fram þegar hún vitnaði fyrir dómi í morgun við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur 14. september 2021 10:52 Mest lesið Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Sjá meira
„Ég þekki þessa hluti, þetta eru ekki manneskjur“ Góðvinur og samstarfsmaður Armando Beqirai var harðorður í garð sakborninga í Rauðagerðismálinu svokallaða þegar hann bar vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann sagði sakborningana fjóra ekki manneskjur heldur hluti. 15. september 2021 17:01
Atlagan í Rauðagerði tók innan við mínútu Sérfræðingur í að vinna myndefni kom fyrir dóminn í Rauðagerðismálinu í dag og útskýrði hvernig hann hefði notað upplýsingar úr ólíkum áttum, svo sem eftirlitsmyndavélum og farsímagögn, til að búa til myndband sem sýnir atburðarásina laugardagskvöldið 13. febrúar þegar Armando Beqirai var ráðinn bani við heimili sitt í Rauðagerði í Reykjavík. 14. september 2021 14:20
Aldrei séð skotvopn á heimilinu í Rauðagerði Ekkja Armando Beqirai, sem var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt við Rauðagerði í febrúar, segir að ekkert skotvopn hafi verið geymt á heimili þeirra, þrátt fyrir staðhæfingu Angjelins Sterkaj um það fyrir dómi í gær. Þetta kom fram þegar hún vitnaði fyrir dómi í morgun við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur 14. september 2021 10:52