Wire-stjarnan lést úr ofskammti af eiturlyfjum Kjartan Kjartansson skrifar 25. september 2021 08:47 Michael K. Willams lést úr bráðaeitrun samkvæmt úrskurði réttarmeinafræðings í New York. AP/Chris Pizzello Réttarmeinafræðingur í New York hefur úrskurðað að Michael K. Williams, leikarinn sem var helst þekktur fyrir hlutverk sitt í þáttaröðinni The Wire, hafi látist af því að hafa tekið óvart of stóran skammt af blöndu eiturlyfja og lyfja.
Frændi Williams kom að honum meðvitundarlausum á heimili leikarans í New York 6. september. Williams var úrskurðaður látinn skömmu síðar. Hann var 54 ára gamall. Niðurstaða réttarmeinafræðingsins var að dauði Williams hefði verið slys. Hann hefði tekið inn of stóran skammt af blöndu kókaíns, heróíns og ópíóíðalyfinu fentanýl, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Leikarinn hafði átt í fíknivanda í gegnum tíðina. Í viðtali árið 2012 sagðist hann hafa verið í neyslu þegar hann lék í „The Wire“ en að hann neytti ekki sterkari efna en kókaíns og maríjúana. „Ég lék mér að eldinum. Það var bara tímaspursmál hvenær ég yrði gripinn og mál mín enduðu á forsíðu slúðurblaðs eða ég lenti í fangelsi, eða enn verra, að það yrði mér að bana,“ sagði Williams þá. Williams hlaut mikið lof fyrir túlkun sína á persónu Omars Little, samkynhneigðs glæpamanns sem sérhæfði sig í að ræna fíkniefnasala, í „The Wire“ sem fjölluðu um samfélagið í Baltimore-borg út frá mörgum hliðum. Þættirnir voru meðal annars í uppáhaldi hjá Barack Obama, þáverandi Bandaríkjaforseta, og var Omar uppáhaldspersóna hans í þáttunum.
Bandaríkin Bíó og sjónvarp Hollywood Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira