Réðst á fyrrverandi eiginkonu sína með öxi og var skotinn Samúel Karl Ólason skrifar 5. október 2021 13:11 John Wes Townley á blaðamannafundi eftir NASCAR-keppni árið 2014. AP/Nam Y. Huh John Wes Townley, fyrrverandi ökumaður í NASCAR, var skotinn til bana í Georgíu í Bandaríkjunum um helgina. Hann var skotinn eftir að hann réðst á fyrrverandi eiginkonu sína og annan mann með öxi.
Skilnaði John og Lauru Townley lauk formlega á föstudaginn en hún var með Zachary Anderson á laugardagskvöldið þegar Townley veittist að þeim með öxi. Anderson skaut Townley til bana en særði einnig Lauru Townley fyrir slysni. Hún særðist alvarlega en er ekki sögð í lífshættu, samkvæmt frétt AP. John Wes Townley lést á sjúkrahúsi. Townley keyrði í NASCAR í átta tímabil og ók hann bíl sem var í eigu föður hans. Hann vann eina keppni í einni af lægri deildum NASCAR í Las Vegas fyrir sex árum. AP segir lögregluna reyna að varpa ljósi á það hvort Townley hafi mætt á vettvang með öxina eða hvort hún hafi verið á heimilinu þar sem hann var skotinn til bana. Héraðsmiðillinn Athens Banner-Herald segir hins vegar að Townley hafi mætt með öxina. Miðillinn segir einnig að Townley hafi verið ákærður fyrir heimilisofbeldi gegn Lauru Townley árið 2019. Þá játaði hann brot sitt og var dæmdur til skilorðs í tólf mánuði.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira